Lífið

Píanóleikari lék lagið Eternal Flame sultuslakur í miðjum óeirðum

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Píanóleikarinn kippti sér ekkert upp við sírenuvæl, sprengingar, eld og óeirðir í miðjum óeirðum í Barcelonaborg. 
Píanóleikarinn kippti sér ekkert upp við sírenuvæl, sprengingar, eld og óeirðir í miðjum óeirðum í Barcelonaborg.  Skjáskot

Það eru ekki allir á eitt sáttir með þau boð og bönn sem tekið hafa gildi í Evrópu til þess að stemma stigu við útbreiðslu Covid-19. Útgöngubanni hefur meðal annars verið beitt víða um Evrópu, þar með talið á Spáni.

Þar í landi hefur komið til tals að koma slíku banni á aftur eftir að önnur bylgja faraldursins er farin að reyna á þolmörk heilbrigðiskerfisins.

Nú á dögunum brutust út átök milli mótmælenda og lögreglu í Barcelona þegar mótmælendur lýstu vanþóknun sinni á fyrirhuguðu útgöngubanni.

Myndband sem náðist úr átökunum sýnir heldur súrrealíska en jafnframt ljúfsára stemmningu. Þar má sjá píanóleikara með andlistgrímu leika af alúð lagið Eternal Flame sem hljómsveitin The Bangles gerði heimsfrægt. Píanóleikarinn virðist ekkert kippa sér upp við átökin í kringum sig og keyrir í gegnum lagið eins og hann sé einn í heiminum.

Það er óhætt að segja að þessi sena minni smá á hið víðfræga Titanic-atriði þar sem hljómsveitin spilar tregafulla tónlist fyrir ringulreiða farþegagesti á leið út í ískaldan sjóinn meðan skipið er að sökkva.

Hér fyrir neðan má sjá upprunalegu útgáfu lagsins sem er frá árinu 1989.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.