Tónlist

Föstudagsplaylisti Magnúsar Jóhanns

Hjalti Freyr Ragnarsson skrifar
Píanópilturinn Magnús hefur komið á mikilli svuntuþeysireið inn í íslenskt tónlistarlíf.
Píanópilturinn Magnús hefur komið á mikilli svuntuþeysireið inn í íslenskt tónlistarlíf. anna maggý

Nótnaborðsnostrarinn Magnús Jóhann Ragnarsson setti saman föstudagslagalista vikunnar.

Áætla má að hljómborðsleikur hans hafi borist meirihluta Íslendinga til eyrna, enda hefur hann leikið á slaghörpur, hljóðgervla og allt þar á milli með mörgu af vinsælasta tónlistarfólki landsins undanfarin ár. Þar má nefna Auð, GDRN, Flona, Birni, ClubDub, Jón Jónsson, Bríeti og svo mætti lengi telja.

Þessi farsæli sessjonferill hans hófst að miklu leyti í kjölfar þess að Birnir samplaði lag hans Bullboxer 43 fyrir smellinn Út í geim. 

Lagið má finna á fyrstu sólóplötu Magnúsar, Pronto, en fyrir viku síðan sendi hann svo frá sér plötu númer tvö, Without Listening.

Magnús segir margt sem finna má á lagalistanum hafa haft mikil áhrif á nýju plötuna. Hann lýsir honum sem „stuttum skammdegisplaylista,“ og segir hann blöndu af sinni uppáhalds músík og því sem hann hafi verið að hlusta á upp á síðkastið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.