Sólrún Diego kölluð á vettvang: „Hver gengur svona um?“ Vésteinn Örn Pétursson skrifar 21. nóvember 2020 11:00 Það var allt á rúi og stúi þegar komið var á vettvang. Stöð 2
Gummi Ben, Sóli Hólm og Sólrún Diego fóru á kostum í grínatriði í Föstudagskvöldi í gær þar sem þremenningarnir voru á vettvangi ótrúlegs óþrifnaðar. Atriðið er í stíl Ummerkja, sakamálaþátta sem sýndir eru á Stöð 2. Þar er Sóli í hlutverki ræstingavarðstjórans Sigtryggs Tryggvasonar sem fær tilkynningu frá manni sem heitir Hreinn Ilmur Antonsson, og er leikinn af Gumma Ben. Sá hafði komið á vettvang mikils subbuskapar og hringdi að sjálfsögðu strax í Þrifalínuna. Í innslaginu má meðal annars sjá Hrein í öngum sínum þegar Þrifalínan mætir á vettvang. „Hver gengur svona um?“ spurði hann ítrekað, og stóð ekki á sama. Það kom svo í hlut Sólrúnar Diego að bjarga málunum, en hún leikur sjálfa sig í innslaginu. Sólrún hefur getið sér gott orð á samfélagsmiðlum sem einn helsti þrifa- og hreinlætissérfræðingur landsins og því eðlilegt að hún hafi verið kölluð á vettvang. Sjón er sögu ríkari og innslagið má sjá hér að neðan. Rétt þykir að vara snyrtipinna við því að horfa á innslagið, þar sem meðal annars má sjá bananahýði í sófa og snakkmylsnu á stofuborði.
Föstudagskvöld með Gumma Ben og Sóla Ummerki Grín og gaman Mest lesið Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Lífið Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Lífið Skemmtilega söguhornið: Hneykslanlegt að borða með gaffli frekar en puttunum Áskorun Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Lífið 50+: Sjúkdómasamkeppnin í matarboðinu Áskorun Vonlaust að gagnrýna vini sína Lífið Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Lífið Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Lífið Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Lífið Níutíu og einn meistari útskrifaðist Lífið Fleiri fréttir Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Halla forseti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðarenda Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“