Tónlist

Föstudagsplaylisti Úlfs Eldjárns

Hjalti Freyr Ragnarsson skrifar
Reykjavík GPS var gangsett á Listahátíð í Reykjavík 2018. Verkefnið var ekki það fyrsta sem bræðurnir Úlfur og Halldór Eldjárn hafa unnið saman, en áður unnu þeir t.a.m. saman að verkefninu Strengjakvartettinn endalausi ásamt hönnuðinum Sigurði Oddssyni.
Reykjavík GPS var gangsett á Listahátíð í Reykjavík 2018. Verkefnið var ekki það fyrsta sem bræðurnir Úlfur og Halldór Eldjárn hafa unnið saman, en áður unnu þeir t.a.m. saman að verkefninu Strengjakvartettinn endalausi ásamt hönnuðinum Sigurði Oddssyni. Vísir/Vilhelm

Lagalistasmíði þessa föstudags var í höndum tónskáldsins Úlfs Eldjárns, en fyrir um viku síðan gaf hann út lagið Horfin borg, það fyrsta sem lítur dagsins ljós af væntanlegri breiðskífu.

Breiðskífan er sett saman úr tónlist sem Úlfur samdi fyrir verkefnið Reykjavík GPS, sem hann vann að með bróður sínum Halldóri. Verkið er „gagnvirk tónlistarupplifun sem er hægt að njóta á ákveðnu svæði í miðbæ Reykjavíkur.“

Í því hafa ákveðin tónlistarbrot verið tengd við gps-staðsetningar, þannig að hún breytist samhliða hreyfingu hlustandans um borgina. Hægt er að prófa verkið hér

Úlfur hefur komið víða við í tónlist sinni. Ásamt því að vera meðlimur Apparat Organ Quartet hefur hann samið mikið af tónlist fyrir kvikmyndir, leiksýningar og þar fram eftir götunum. Auk þess að hafa gefið út fjölda sólóverkefna af ýmsum toga.

Úlfur setti saman Reykjavíkurlagalista í tilefni þessa, sem honum þótti viðeigandi þar sem Reykjavík GPS sé „eins konar soundtrack fyrir Reykjavík.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.