Lífið

Auddi fer ekki í klippingu í sex vikur og FM95BLÖ reynir að safna milljón

Stefán Árni Pálsson skrifar
Egill, Auðunn og Steindi reyna safna milljón fyrir Fjölskylduhjálp Íslands. 
Egill, Auðunn og Steindi reyna safna milljón fyrir Fjölskylduhjálp Íslands. 

Strákarnir í FM95Blö hafa nú tekið höndum saman með Fjölskylduhjálp Íslands og mun Auddi ekki skerða hár á höfði sínu í sex vikur safnist ein milljón eða meira til matarkaupa til handa fólki sem þarfnast matar.

Í síðasta þætti af Fm95blö kom upp sú umræða hvernig Auðunn Blöndal yrði ef hann mundi safna hári í heilan mánuð. Auddi gerði lítið úr því og sagði að það væri ekkert mál og ákváðu þeir Egill Einarsson og Steindi Jr. að skora á hann að safna í sex vikur og þeir myndu henda í söfnun. Nú hefur Auddi safnað í tvær vikur og var myndin af honum sem fylgir fréttinni tekin í morgun. Hann hefur ekki safnað hárið síðan árið 2006.

Auddi sló til og hafa þeir ákveðið að reyna við milljón og mun allur ágóði renna í frábært málefni sem er Fjölskylduhjálp Íslands.

Strákarnir hafa sex vikur til að safna og stefna þeir á að fara yfir milljónina. Strákarnir munu sýna muninn á hárinu á Audda vikulega og fara yfir hversu miklu er búið að safna.

Helstu fjáröflunarleiðir Fjölskylduhjálpar Íslands eru frjáls framlög frá almenningi og fyrirtækjum, Íslandsforeldra verkefnið þar sem hægt er að styrkja um fasta upphæð mánaðarlega, og fjáröflunarmarkaðir sem selja vörur á hagstæðu verði.

Fjölskylduhjálpin er með 2 starfsstöðvar, að Iðufelli 14 í Reykjavík og Baldursgötu 14 í Reykjanesbæ. Sjálfboðaliðar Fjölskylduhjálparinnar eru um 50 talsins.

Hér má styrkja málefnið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.