Menning

Fílharmónía gefur út Landið mitt á sextíu ára afmælinu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar

Söngsveitin Fílharmónía fagnar sextugsafmæli með útgáfu á Landið mitt eftir Jóhann G. Jóhannsson sem samdi bæði lag og ljóð.

Til stóð að fagna sextugsafmæli Söngsveitarinnar Fílharmóníu með stórtónleikum í Langholtskirkju en í samkomubanni þurfti að grípa til annarra leiða. Myndbandið er því afmælissöngur kórsins og gefið út sléttum sextíu árum frá fyrstu tónleikum kórsins.

Landið mitt varð hlutskarpast í samkeppni um kórlag í tilefni af hundrað ára fullveldis á Íslandi.

Hver kórfélagi tók upp sinn söng en hljóðblöndun og vinnsla var í höndum tenórsins Gunnars Freys Steinssonar. Magnús Ragnarsson stjórnaði.

Fyrirhugaðir afmælistónleikar verða svo haldnir í haust þegar fólk má aftur hópast saman og njóta tónlistar.

Textinn

Landið mitt

Þú ert ís, þú ert eldur og aldan blá, þú ert auður og von og trú,

þú ert friðsæld og frelsi og fjöllin há, landið fegursta, það ert þú.

Þegar vorsólin rís yfir borg og bæ og hvert blóm fær sitt líf og lag

berst sem óður til lífsins í ljúfum blæ söngur lóu um sumardag.

Þú ert napurt norðanél, þín er nóttin svört sem hel,

þú ert dimm og hyldjúp gjá, þú ert dáið, lítið strá.

Góða Ísland, gamla Ísland, þú sem geymir mín spor,

gef mér kjark, gef mér dug, gef mér þor!

Sé með svikum og vélráðum veist að þér skal ég verja hvern dal og hól

og að endingu tekur á móti mér moldin þín þegar sest er sól.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.