Menning

Bein út­­­­­sending: Heima­helgi­­­­­stund í Hallgríms­­­kirkju

Andri Eysteinsson skrifar
Hallgrímskirkja býður upp á helgistund heim í stofu.
Hallgrímskirkja býður upp á helgistund heim í stofu. Vísir/Vilhelm

Í dag klukkan 17 verður heimahelgistund streymt heim til landsmanna frá Hallgrímskirkju.

Eins og svo margt annað fellur allt messuhald og fermingar í Þjóðkirkjunni niður í vor vegna samkomubannsins og faraldurs kórónuveiru.

Á meðan á þessu stendur ætlar kirkjan að koma til heimila þess fólks sem getur ekki heimsótt hana og er hægt að fylgjast með í beinni útsendingu hér á Vísi.

„Meðan samkomubann ríkir viljum við færa þjóðkirkjuna og hennar starf heim í stofu. Fólk getur átt þá hugleiðslu, bæn og kyrrð sem það annars myndi eiga í kirkjunni, heima hjá sér. Kirkjan hefur miklar skyldur gagnvart þjóðinni og þetta er ein leiðin til þess að uppfylla þær. Þrjár kirkjur ríða á vaðið, Laugarneskirkja, þá Lindakirkja og svo Vídalínskirkja, framhaldið spilum við svo eftir eyranu eftir því hvernig málin þróast,“ segir Pétur G. Markan, samskiptastjóri Biskupsstofu. Formið á helgistundunum svipar til messu, með hugvekju, bæn og tónlist, en er þó knappara, eða 25 til 30 mínútur.

Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju munu syngja undir stjórn Harðar Áskelssonar og Sr. Sigurður Árni Þórðarson mun leiða helgistundina.

Fjórar kirkjur hafa þegar riðið á vaðið og eru það Bessastaðakirkja, Laugarneskirkja, Lindakirkja og Vídalínskirkja.

Klippa: Heimahelgistund í Hallgrímskirkju





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.