Lífið

Greta Thun­berg á­tján ára: „Ég er ekki týpan sem held upp á af­mælis­daga“

Atli Ísleifsson skrifar
Greta Thunberg flytur ræðu í Berlín í ágúst síðastliðinn.
Greta Thunberg flytur ræðu í Berlín í ágúst síðastliðinn. Getty

Sænski loftslagsaðgerðasinninn Greta Thunberg er átján ára í dag og hefur því náð þeim aldri til að geta kosið í kosningum í Svíþjóð og keyra bíl. Hún segist þó ekki hafa nein plön um að halda sérstaklega upp á tímamótin.

„Ég er ekki týpan sem held upp á afmælisdaga,“ segir hún í samtali við Sunday Times.

Greta Thunberg varð heimsþekkt fyrir um tveimur og hálfu ári þegar hún hóf loftslagsverkföll sín fyrir utan sænska þinghúsið í Stokkhólmi.

Hún segist fagna því að barátta hennar og annarra hafi fengið athygli og að hún hafi þýtt eitthvað í baráttunni gegn loftslagsvánni.

„Ég hef að sjálfsögðu séð breytingu þegar kemur að því hvernig talað er um loftslagskrísuna. Hún hefur fengið mun meiri athygli en áður. Loftslagsverkföllin kunna vissulega að hafa átt þar þátt í máli,“ segir Thunberg.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.