„Umhleypingar næstu daga og lítið um vetrarstillur“ Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 14. janúar 2021 06:38 Það verður víst lítið um vetrarstillur í veðrinu næstu daga heldur meira um rigningu og rok. Vísir/Vilhelm Það verða umhleypingar í veðrinu næstu daga og lítið um vetrarstillur að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands.
Suðlægar áttir verða ríkjandi í dag með skúrum eða slydduéljum en léttir til norðan- og austanlands þegar líður á daginn: „Umhleypingar næstu daga og lítið um vetrarstillur. Suðlægar áttir verða ríkjandi á landinu í dag með skúrum eða slydduéljum, en léttir til norðan- og austanlands þegar líður á daginn og kólnar heldur þar og má gera ráð fyrir að þar verði besta veðrið sem boðið verður uppá í þessari viku í dag og fram eftir degi á morgun,“ segir í hugleiðingunum. Á morgun ganga skil inn á landið úr suðri með vaxandi austanátt. Það er spá hvassviðri síðdegis og rigningu eða slyddu um landið sunnanvert en þykknar upp fyrir norðan. Hvassast verður allra syðst einkum undir Eyjafjöllum. „Austan og norðaustanátt annað kvöld, 10-18 m/s. Bætir í úrkomu suðaustan- og austanlands og má búast við talsverðri eða mikilli úrkomu á þeim slóðum. Slydda eða snjókoma með köflum í öðrum landshlutum, en yfirleitt þurrt á Vestfjörðum. Vetrarlegt veður í kortunum um helgina, allhvöss eða hvöss norðan og norðvestanátt. Snjókoma eða slydda fyrir norðan og lítið skíðaveður, en styttir upp og léttir til syðra og fremur svalt í veðri, en stífur vindur.“ Veðurhorfur á landinu: Sunnan og suðaustan 5-13 og skúrir eða slydduél, en rigning austanlands fram eftir morgni. Léttir til norðan- og austanlands eftir hádegi. Gengur í austan 13-20 með rigningu eða slyddu um landið sunnanvert á morgun, hvassast syðst síðdegis, en mun hægari vindur og þykknar upp fyrir norðan. Austan og norðaustan 10-18 annað kvöld. Slydda eða snjókoma með köflum, en talsverð eða mikil rigning suðaustan- og austanlands. Hiti 0 til 5 stig, en hiti kringum frostmark fyrir norðan. Á föstudag: Austlæg átt, 5-10 m/s og úrkomulítið norðantil á landinu, en gengur í austan 13-20 m/s um landið sunnanvert með rigningu eða slyddu, hvassast syðst. Talsverð eða mikil rigning suðaustan- og austanlands um kvöldið. Hiti 0 til 5 stig sunnantil, en hiti um og undir frostmarki norðantil. Á laugardag: Norðaustan 8-15 N-til, en norðvestan 8-15 S-til. Rigning eða slydda með köflum, en talsverð rigning A-lands. Heldur hvassari norðanátt með snjókomu norðantil um kvöldið, en dregur úr úrkomu fyrir austan. Hiti um og yfir frostmarki. Á sunnudag: Hvöss norðan og norðvestanátt með slyddu eða snjókomu norðantil á landinu, en heldur hægari og þurrt sunnan heiða. Hiti kringum frostmark.
Veður Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira