Lífið

Einstök tveggja herbergja 35 fermetra íbúð

Stefán Árni Pálsson skrifar
Luca sá um hönnun eignarinnar. 
Luca sá um hönnun eignarinnar. 

Luca Scardulla sá um innanhússhönnun á lítilli 35 fermetra stúdíó íbúð í Deiva Marina sem er um tveimur klukkustundum frá Mílan á Ítalíu.

Deiva Marina er fallegur strandbær á Ítalíu og er íbúðin notuð sem sumardvalarstaður fyrir eigendur hennar. Þegar Luca fékk verkefnið í hendurnar fékk hann þau skilaboð að það yrðu að vera tvö svefnherbergi inni í íbúðinni, fyrir hjón og tvær dætur.

Eignin er einstaklega vel skipulögð eins og sjá má á YouTube-síðunni Never Too Small.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.