Lífið

Ís­lendingar rifja upp síðustu utan­lands­ferðina

Stefán Árni Pálsson skrifar
Margir sem bíða eftir næstu ferð.
Margir sem bíða eftir næstu ferð.

„Viltu segja mér frá seinustu útlandaferðinni þinni?“

Þetta skrifar Ólöf Hugrún í færslu á Twitter og hvetur Íslendinga til að rifja upp síðast þegar þeir fóru til útlanda en eðli málsins samkvæmt hefur ekki verið mikið um utanlandsferðir síðastliðna 10 mánuði vegna útbreiðslu kórónuveirunnar sem veldur Covid-19 sjúkdómnum.

„Ég fór seinast til útlanda í nóv. 2019, til Noregs og Svíþjóðar. Norge-Hitti Evu frænku og Line vinkonu. Fór með Hirti í afmæli til bróður hans sem býr í Svíþjóð, gaman. Hélt þá að ég væri á leið til Tene páskana 2020,“ segir Ólöf sjálf og fjölmargir svara síðan tísti Ólafar.

 Haukur Viðar Alfreðsson kom með sína sögu:

„Tók þrusufína tvennu í janúar 2020, þegar Covid var bara „eitthvað drasl í útlöndum“:

1. Glasgow með miðaldra mönnum að sjá Slipknot og Behemoth.

2. París með heittelskuðu að borða gúmmelaði og slæpast.

Þessar ferðir fleyttu mér langt í gegnum ömurlegheit ársins 2020,“ skrifar Haukur.

„New York með burleskhóp í pílagrímsför. Fimm daga ævintýri, sýningar, workshop, góður matur og nóg af frítíma. Var svo byrjuð að skipuleggja aðra svoleiðis ferð með nýjum hópi sem átti að vera farin núna í vor,“ skrifar Margrét Erla Maack.

Sigurður Ingi skellti sér til Singapúr í byrjun síðasta árs. „Ég fór til Singapúrs Jánúar 2020 sem endapunkt á minni ferðalagi til Filippseyja desember 2019,“ skrifar Sigurður.

„Istanbúl í júní 2020 til að halda upp á fimmtugsafmælið mitt, borða endalaust af góðum mat og hafa það almennt næs. Það eru meira en 20 ár síðan það hefur liðið svona langt á milli utanferða og ég er að tjúllast af útþrá,“ segir sjónvarpskokkurinn Ólafur Örn Ólafsson.

„Edinborg, desember 2019. Stutt helgarferð með konunni en lentum í óveðrinu mikla sem fór illa með Ísland og seinkaði heimkomu okkar um tvo daga svo úr varð vikuferð. Ég er mjög þakklátur fyrir þá aukadaga núna,“ skrifar Kristján Atli en sem betur fer kom þarna inn góð seiknun.

Brynhildur Bolladóttir ætlaði í brúðkaup sem aldrei varð.

„München. September 2019. Var boðið í brúðkaup sem tilvonandi brúðurin beilaði á nokkrum vikum fyrr. Náði geggjuðum tíma með henni, fór á Oktoberfest og svaf út. Stórkostleg ferð. Heyrðu nei. Svo fór ég í vinnuferð til Búdapest í nóvember 2019. Sem var mjög fín,“ skrifar Brynhildur.

„Húsmæðraorlof í Glasgow í febrúar 2020. Fór ein út og hitti vinkonu sem býr þar. Upgrade á hótelherbergi og alles. Var mega næs! Hlakka til að komast til Kenía vonandi 2022,“ skrifar Vera Knútsdóttir.

„Fór til Amsterdam í október '18 það var fínt, tók þessa mynd. Mylla, því ég var í Myllubakkaskóla,“ segir aðili sem kallar sig Gröfugúffari á Twitter.

„Fór með 3 vinkonum til Albir, mjög úr karakter fyrir okkur en snilld. Ákveðið með viku fyrirvara ef ég man rétt. Dagsferð til Benedorm þar sem við enduðum á froðudiskói. Ég er svo óflippuð að ég fékk útbrot eftir froðuna. Sól, drykkir og afslöppun,“ skrifar Birna Rán.

Síðast þegar Katla María fór utan var um að ræða landsliðsferð í vélmennaforritun.

„Dubai, Október 2019, með landsliðinu í vélmennaforritun. Komumst ekki langt í keppninni en fengum að sjá stærstu myndaramma-laga byggingu í heiminum.“

„Fór til Austurríkis fyrir akkúrat ári í mína fyrstu og einu skíðaferð með fyrrverandi tengdafjölskyldu minni. Það var mjög gaman, náði m.a. síðasta útlandadjamminu rétt fyrir Covid. Reyndi svo að plana tvær aðrar ferðir 2020 en báðar feiluðu,“ skrifaði Þorvaldur Helgason á Twitter.

Ragnar Nói fór síðast til Bandaríkjanna árið 2019.

„Sumarið 2019. Fórum til Californiu að hitta tengdó. Góður matur og góður félagsskapur.“

 Vally var síðast í hitabylgju í Berlín.

„Berlín, júlí 2018 með fjölskyldunni. Fór á Brockhampton tónleika í hitabylgju og loftræstingarlausu venue-i, hef aldrei svitnað jafn mikið.“

 María Gunnarsdóttir fílaði Tenerife.

„Tene með karlinum í nóv 2019. Fyrsta ferð okkar þangað - ætluðum sko aftur helst eftir 3 mánuði. Geggjað chill, sól, strönd, rölt, drykkir - ó svo margir svalandi drykkir. *snökt*,“ skrifar María.

„Afmælisferð pabba með fjölskyldunni minni til malasíu og tælands í þrjár vikur jólin 2019. Besta ferð í heimi Smiling face with 3 hearts Svo þakklát fyrir að við höfum náð henni rétt fyrir alheimslockdown,“ skrifar Sigrún Karlsdóttir.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.