Albumm

Sjötíu plötur og mörg hundruð þúsund streymi

Ritstjórn Albumm skrifar
Árni Grétar Jóhannesson á og rekur útgáfuna Móatún 7.
Árni Grétar Jóhannesson á og rekur útgáfuna Móatún 7.

Raftónlistarútgáfan Móatún 7 er heldur betur að gera góða hluti um þessar mundir en útgáfan sérhæfir sig í 7-tommu vínylplötum sem eru framleiddar hér á Íslandi. Útgáfurnar eru nú orðnar alls sjötíu talsins og hafa selst í meira en tvö þúsund eintökum en nánast öll eintökin voru send kaupendum erlendis.

Á þessum sjötíu plötum má finna gríðarlegt magn af íslenskri raftónlist. Til að mynda eftir Skurken, Biogen, Röskva, Futuregrapher, Andartak og fleiri. Á plötunum má einnig finna þekkt  raftónlistarnöfn eins og Future Sound Of London, Plaid, B12, Metamatics og fleiri en allt eru það goðsagnir í raftónlistarheiminum.

Móatún 7 er heimilisfang æskuheimilis Árna á Tálknafirði en útgáfan er rekin frá Reykjavík.

Spilanir á Bandcamp síðu útgáfunnar á síðasta ári töldu hundruði þúsunda, sem telst virkilega góður árangur. Síðasta 7-tommu útgáfan er með þýsku sveitinni Drøn en sú sveit er þekkt í raftónlistinni víða. Hægt er að hlusta á hana hér fyrir neðan.


Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í albumm@albumm.is.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.