Leikjavísir

Mánudagsstreymið: Verjast hjörðum uppvakninga á nýjan leik

Samúel Karl Ólason skrifar
7days to die

Strákarnir í GameTíví ætla að kíkja aftur á leikinn 7 Days to Die, þar sem þeir þurfa að taka höndum saman til að lifa af í heimi stútfullum af uppvakningum.

Síðst kíktu þeir á leikinn í fyrra og varð það eitt vinsælasta streymi GameTíví.

7DtD er svokallaður survival leikur þar sem spilarar þurfa að snúa bökum saman til að lifa af í illa förnum heimi eftir kjarnorkustyrjöld.

Auk þess að þurfa að eiga við náttúruölfin þurfa spilarar að safna birgðum og verjast hjörðum uppvakninga, eins og gengur og gerist eftir kjarnorkustyrjaldir.

Gamanið hefst klukkan átta á Stöð 2 eSport, Twitchrás GameTíví og Vísi. Hægt er að horfa hér að neðan.

Fyrsta mánudagsstreymi febrúar verður uppfullt af uppvakningum en strákarnir skipta liði og keppast um hvor getur...

Posted by GameTíví on Monday, 1 February 2021





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.