Menning

Þóranna Dögg Björnsdóttir og Þráinn Hjálmarsson stýra Sequences X

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Þráinn Hjálmarsson tónskáld og Þóranna Dögg Björnsdóttir listakona. 27 innlendir og erlendir listamenn sýna á hátíðinni í ár. 
Þráinn Hjálmarsson tónskáld og Þóranna Dögg Björnsdóttir listakona. 27 innlendir og erlendir listamenn sýna á hátíðinni í ár.  Rainy Siagian

Tilkynnt hefur verið að Þóranna Dögg Björnsdóttir og Þráinn Hjálmarsson munu verða sýningarstjórar myndlistarhátíðarinnar Sequences X í október. Elísabet Jökulsdóttir verður heiðurslistamaður hátíðarinnar.

Alþjóðlegi myndlistartvíæringurinn Sequences verður haldinn í tíunda sinn í október á þessu ári og verða sýnd verk eftir 27 ólíka listamenn. Sequences er afsprengi sköpunarkraftsins sem kraumar hér á landi og hefur nú fest sig í sessi sem mikilvægur vettvangur fyrir þróun myndlistar á Íslandi. Hverju sinni er teflt fram kröftugum og framsæknum sýningarstjórum en sýningastjórar hátíðarinnar að þessu sinni eru Þóranna Dögg Björnsdóttir, listakona og Þráinn Hjálmarsson, tónskáld.

Undirtitill Sequences, real time art festival, vísar til upphaflegu áherslu hátíðarinnar á tímatengda miðla og verk sem unnin eru í rauntíma.

„Hátíðin í ár beinir sjónum sínum að manngerðum tímavísum í umhverfi okkar. Til dæmis hvernig „lesa“ megi tíðarandann í almennum athöfnum okkar og af ráðandi hugmyndum í samfélaginu hverju sinni. Samfélagslegar hugmyndir og hugarfar eru síkvik líkt og samfélögin sjálf. Flæði tímans markast af endurnýjun og breytingu þessara hugmynda. Það að skapa hreyfingu á hugmyndir í samfélaginu hreyfir við tímanum.“ segir Þráinn.

Mynd frá sýningunni a) í Kling & Bang á Sequences ix, 2019. Sýningarstjórar: Hildigunnur Birgisdóttir & Ingólfur Arnarsson.Margarita Ogolceva

Hryggjarstykki hátíðarinnar verður fjölbreytt, þverfagleg sýningar- og viðburðardagskrá með verkum eftir 27 íslenska og erlenda listamenn með ólíkan bakgrunn; danshöfunda, skáld, tónskáld, hönnuði og myndlistarmenn. Þá mun hátíðin teygja anga sína víða um borgina; Marshallhúsið úti á Granda, sem hýsir bæði Nýlistasafnið og Kling & Bang, Open, Flæði, Bíó Paradís og Ásmundarsal.

Sequences real time art festival verður haldin dagana 15. til 24. október 2021 en hátíðin hóf göngu sína árið 2006. Sequences hefur það að markmiði að vera vettvangur fyrir framsækna myndlist með sérstaka áherslu á tímatengda miðla. Almenningi gefst tækifæri á að fá innsýn inn í það sem á sér stað í samtímamyndlist á Íslandi hverju sinni auk þess sem lagt er upp úr því að vera í tengslum við alþjóðlega listamenn og flytja spennandi verk til landsins.

Að hátíðinni standa listamannareknu sýningarstaðirnir Kling & Bang og Nýlistasafnið, Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar ásamt öflugu fagráði sem í sitja listamenn og óháðir aðilar sem eru virkir í listamannareknu senunni í Reykjavík hverju sinni.

Elísabet Jökulsdóttir hlaut á dögunum Íslensku bókmenntaverðlaunin í flokki skáldverka fyrir bókina Aprílsólarkuldi.Lárus karl ingason

Heiðurslistamaður hátíðarinnar verður Elísabet Jökulsdóttir ljóðskáld og rithöfundur en hún á að baki langan og einstakan feril í íslensku menningarlífi.

„Verk Elísabetar eru sem barómeter á samfélagið hverju sinni. Elísabet er síkvik og örlát í umfjöllun sinni um mennskuna og með gjörningum sínum og orðlist spinnur hún þræði milli ólíkra listforma. Hún hefur rutt brautina í umræðu um geðheilbrigði og með frásögnum sínum og samtali við samfélagið gefur hún okkur tækifæri til að stækka sálina og spegla okkur í litrófi sammannlegra tilfinninga. Hún er alltaf að minna okkur á töfrana” segir Þóranna Dögg.

Nánar upplýsingar má finna á vef hátíðarinnar www.sequences.is


Tengdar fréttir

Markmiðið er að heiðra myndlistarmenn hér á landi

Myndlistarráð hefur tilkynnt tilnefningarnar í forvalinu til Íslensku myndlistarverðlaunanna 2021. Veitt eru veitt í tveimur flokkum, myndlistarmaður ársins og hvatningarverðlaun ársins.

Harma að mynd­lista­menn tor­tyggi eigin full­trúa

Samband íslenskra myndlistarmanna hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna umræðu um úthlutunarnefnd starfslauna myndlistarmanna. Yfirlýsingin kemur í kjölfar gagnrýni Snorra Ásmundarsonar myndlistarmanns, sem telur vinagreiða ráða för við úthlutunina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.