Lífið

Sótt­varna­ráð­stafanir settu svip á at­riði The We­eknd í hálf­leik Ofur­skálarinnar

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Það var lítið um brellur og dans hjá The Weeknd og þá var aðeins hluti atriðisins á vellinum sjálfum vegna sóttvarnaráðstafana.
Það var lítið um brellur og dans hjá The Weeknd og þá var aðeins hluti atriðisins á vellinum sjálfum vegna sóttvarnaráðstafana. Getty/Kevin Mazur

Kanadíski R&B-tónlistarmaðurinn The Weeknd tók brot úr öllum sínum helstu slögurum í hálfleik Ofurskálarinnar sem fram fór í nótt, þar á meðal Starboy, I Can‘t Feel My Face og eitt vinsælasta lag síðasta árs, Blinding Lights.

Það er talin mikil upphefð fyrir tónlistarmenn að vera með atriðið í hálfleik Ofurskálarinnar og sýningin er jafnan mikið sjónarspil.

Atriði The Weeknd bar hins vegar með sér að það var sett upp á tímum kórónuveirufaraldurs og sóttvarnaráðstafana.

Þannig þurfti hann að flytja atriðið að mestu leyti frá áhorfendapöllunum en ekki frá vellinum sjálfum nema að hluta og það var mun minna um hvers kyns brellur en síðustu ár.

Þá var leikvangurinn ekki fullur vegna samkomutakmarkana; aðeins 25 þúsund manns voru á áhorfendapöllunum en 30 þúsund pappaspjöldum hafði síðan verið komið fyrir í þeim sætum sem voru tóm.

Gagnrýnandi BBC segir tónlist The Weeknd hafa fengið að njóta sín í atriðinu. Eins og áður segir var lítið um brellur og ekki steig tónlistarmaðurinn mörg dansspor eins og gjarnan er í hálfleiksatriðum Ofurskálarinnar.

Atriðið má sjá í spilaranum ofar í fréttinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.