Lífið

Dóra fagnar ári edrú og býður fram aðstoð sína

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Dóra Jóhannsdóttir skellti sér á Móskarðshnjúka í sumar.
Dóra Jóhannsdóttir skellti sér á Móskarðshnjúka í sumar. @dorajohanns

Dóra Jóhannsdóttir leikkona, handritshöfundur og stofnandi Improv skólans fagnar þeim tímamótum í dag að hafa verið án áfengis í eitt ár. Dóra greinir frá þessu á Facebook-síðu sinni og hamingjuóskum rignir yfir hana. Hún býður fram krafta sína ef aðrir vilja feta sporin til lífs án áfengis.

„Að hætta að drekka var ákvörðun sem ég tók fyrir tæpum 3 árum, enda neyslan farin að hafa mikil neikvæð áhrif á líf mitt. En það reyndist þrautinni þyngra að ná því,“ segir Dóra.

„Botninn varð alltaf dýpri og dýpri og fyrir ári síðan var ég búin að missa alla stjórn, líf mitt var komið í algjöra rúst og örvæntingin var rosaleg.“

Hún stóð þó ekki ein.

„Ég þurfti mikla hjálp, sem ég blessunarlega fékk, og ég er óendanlega þakklát öllu fólkinu sem hefur hjálpað mér og staðið við bakið á mér í þessu bataferli. Ég hefði aldrei getað þetta ein. Ég tárast og fæ hroll þegar ég horfi á ljósmynd af mér fyrir akkúrat ári síðan,“ segir Dóra. En hún kíki reglulega á þessa mynd til að minna sig á hvaðan hún sé að koma.

Eitt ár edrú í dag!!!! Að hætta að drekka var ákvörðun sem ég tók fyrir tæpum 3 árum, enda neyslan farin að hafa...

Posted by Dóra Jóhannsdóttir on Sunday, February 7, 2021

„Ég hef breyst mikið og þroskast og líf mitt í dag er ótrúlega fallegt og gott og sífellt að koma mér á óvart. Ég hef fundið fyrir hamingju og frið sem ég vissi ekki að væri til! Ég er stútfull af þakklæti og vil koma því fram að ég er til staðar fyrir hvern þann sem vill hjálp við að verða edrú.“

Síðasta ár var svo sannarlega tíðindamikið hjá Dóru. Hún fór í meðferð í Svíþjóð sem virðist hafa skilað mjög góðum árangri auk þess að útskrifast úr Hússtjórnarskólanum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.