Lífið

Glimmerjakkarnir og skórnir hans Jóhanns fá nýtt heimili

Stefán Árni Pálsson skrifar
Jóhann og Kristín hafa komið sér vel fyrir í Dalbrekkunni.
Jóhann og Kristín hafa komið sér vel fyrir í Dalbrekkunni.

„Kæru vinir, já það er komið að þessu, við erum búin að setja fallegu íbúðina okkar á sölu. Hér er hátt til lofts og vítt til veggja og dásamlegt að vera,“ skrifar britinn og dansdómarinn Jóhann Gunnar Arnarsson í færslu á Facebook en hann fór meðal annars á kostum sem dómari í skemmtiþáttunum Allir geta dansað á Stöð 2.

Jóhann og Kristín Ólafsdóttir hafa sett eign sína við Dalbrekku í Kópavogi á sölu

„Vegir liggja hér til allra átta og stutt í alla verslun og þjónustu. Ævintýrin halda áfram.“

Um er að ræða 188,5 fermetra íbúð í fjölbýlishúsi í Kópavogi og er eignin nokkuð glæsileg og hjónin greinilega komið sér vel fyrir. Húsið var byggt árið 1984 og eru í íbúðinni þrjú svefnherbergi.

Ásett verð er 79,9 milljónir en fasteignamatið 63,4 milljón. Í fasteignaauglýsingu eignarinnar er talað um stórglæsilega New York Loft íbúð í hjarta Kópavogs.

Þar segir einnig: „Tvö stór svefnherbergi eru íbúðinni, 20 fm. hjónaherbergi með fataherbergi. Þá hefur bílskúr verið breytt í tvö 17 fm. herbergi, annað nýtt sem svefnherbergi og er með stórum og góðum skáp.Hitt er nýtt sem geymsla, enda þarf húsbóndinn nóg pláss fyrir glitrandi skóna og glimmer jakkana,“ en Jóhann er þekktur fyrir sína fallega glimmerjakka sem hann var oft á tíðum í í Allir geta dansað.  Hann var einnig þekktur fyrir að mæta alltaf í flottum glimmerskóm í þættina. 

Hér að neðan má sjá íbúð þeirra hjóna. 

Eldhús og borðstofa í einu björtu rými.
Setustofan einnig samhliða borðstofu og eldhúsi.
Borðstofan og setustofan er stórt og mjög bart rými.
Virkilega sjarmerandi baðherbergi.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.