Tveir handteknir til viðbótar vegna morðsins við Rauðagerði Elín Margrét Böðvarsdóttir og Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifa 20. febrúar 2021 11:56 Vísir Albanskur karlmaður á fertugsaldri er grunaður um að hafa ráðið Armando Beqirai bana fyrir utan heimili hans við Rauðagerði í Reykjavík um síðustu helgi. Þetta herma heimildir fréttastofu. Hann var handtekinn á miðvikudag og húsleit gerð á heimili hans, þar sem ummerki eftir skotvopn fundust.
Heimildir herma að búið hafi verið að skjóta úr byssu meðal annars á veggi og gólf og verið er að rannsaka hvort skothylkin séu sambærileg þeim sem fundust á vettvangi. Lögregla telur sig vita hver byssumaðurinn er. Skotvopnið er hins vegar ófundið en talið er að um hafi verið að ræða skammbyssu. Rannsóknin er gríðarlega umfangsmikil og verst lögregla allra fregna. Þá voru tveir til viðbótar handteknir í gær í tengslum við rannsókn málsins. Alls eru því nú tíu í haldi vegna málsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni en Rúv greindi fyrst frá handtökunum. Hinir handteknu eru erlendir ríkisborgarar. Ekki liggur fyrir að svo stöddu hvort farið verði fram á gæsluvarðhald yfir þeim að því er fram kemur í tilkynningunni. Fréttin hefur verið uppfærð.
Morð í Rauðagerði Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Erlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Fleiri fréttir Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Sjá meira