Velta því fyrir sér hvort Tiger Woods hafi hreinlega sofnað undir stýri Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. mars 2021 08:31 Tiger Woods spilar ekki golf á næstunni en nær sér vonandi sem fyrst góðum af meiðslunum. Getty/Tom Jenkins Sérfræðingar í greiningu á aðstæðum á vettvangi umferðarslysa segja að þær upplýsingar sem eru fyrir hendi bendi til þess að Tiger Woods hafi ekki verið með augun á veginum þegar hann lenti í bílslysinu fyrir helgi.
USA Today fékk þrjá rannsóknarmenn á vettvangi bílslysa til að skoða bílslysið sem kylfingurinn Tiger Woods lenti í fyrir sex dögum síðan eða á þriðjudaginn í síðustu viku. Tiger fótbrotnaði illa á hægri fæti í slysinu en virðist að öðru leyti hafa sloppið ótrúlega vel út þessum slæma árekstri. Samkvæmt ítarlegri skoðun á þeim staðreyndum sem liggja fyrir þá bendir ferðalag bílsins til þess að ökumaðurinn hafi ekki verið að fylgjast með veginum. Available evidence from Tiger Woods' car crash indicates he was not paying attention to the road and drifted off of it before crashing his car, according to three forensic car accident experts. https://t.co/0DRZQlc45t— USA TODAY Sports (@usatodaysports) February 28, 2021 Sérfræðingarnir segja að þetta sé dæmigert fyrir slys þar sem ökumaðurinn sofnar undir stýri. Slysið varð klukkan sjö um morguninn og enginn annar bíll kom nálægt því þegar bíll Tigers endaði utan vegar. Samkvæmt upplýsingum frá vettvangi þá hélt bíll Tigers beint áfram þegar vegurinn beygði til hægri og þá sáust engin bremsumerki á veginum eftir bílinn. Bíll Tigers fór yfir svæðið sem var á milli akreinanna, fór út af veginum hinum megin, lenti á tré og velti síðan. Ástæðan fyrir öllum brotunum á hægri fæti Tigers telja sérfræðingarnir vera sú að hann hafi verið að reyna að bremsa með hægri fæti sínum. Hann hafi hins vegar byrjað að bremsa mjög seint.
Golf Bílslys Tigers Woods Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Fótbolti Markvörður ársins náði að stöðva Orra Fótbolti Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Segir félagið í skítnum Enski boltinn Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira