Auður gefur út Afsakanir nótnabók Ritstjórn Albumm skrifar 17. mars 2021 14:31 Útsetningarnar í bókinni eru fyrir margskonar hljóðfæri. Hvert eintak er númerað og áritað af Auði. Tónlistarmaðurinn Auður gaf út Afsakanir 2. nóvember 2018 við frábærar móttökur. Þetta var önnur platan sem Auður gaf út, en sú fyrsta á íslensku. Textarnir á plötunni eru beinskeittir og einlægir og gefa hlustanda einstakt tækifæri til þess að kynnast hugarheimi Auðar. Sumir gagnrýnendur hafa lýst plötunni sem tímamótaplötu í íslenskri R&B-tónlist. „þessi plata hefur dafnað og fólk myndað við hana persónulega tengingu, afsakanir er mín hugarsmíði en hún er í eigu allra þeirra sem á hana hlusta” – Auður Auður vildi fá að deila þessu listaverki með aðdáendum sínum á öðru formi og ákvað því að gefa út Afsakanir nótnabók. Útsetningarnar í bókinni eru fyrir margskonar hljóðfæri, til að mynda söngrödd, píanó, hljómborð, gítar, rafmagnsgítar, bassa, fiðlu og orgel. Útsetningarnar og nótnaskrifin eru eftir tónlistarmanninn Hafstein Þráinsson (Ceasetone). Nótnabókin var gefin út í takmörkuðu upplagi, eða 100 eintökum. Hvert eintak er númerað og áritað af Auði. Í bókinni má líka finna formála sem Auður skrifaði og upplýsingar um alla þá sem komu að gerð plötunnar. Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í albumm@albumm.is. Tónlist Tengdar fréttir „Ég er listamaður, ég er ekki félagsráðgjafi“ Ein skærasta stjarna íslenskrar tónlistar um þessar mundir, Auður, segir að honum sé alveg sama um gagnrýni frá fólki sem hann þekki ekki. Það hafi ekkert vægi fyrir honum en það sé hins vegar erfitt þegar fólk sem honum þykir vænt um er ósammála því sem hann er að gera. 3. október 2019 16:45 Mest lesið Var ráðskona Kára Stefánssonar þegar ástin kviknaði Lífið Áratugir af óvissu enduðu með einni setningu í ræktinni Lífið Neistaflug hjá Guggu og Flona á rúntinum Lífið Gríðarlega löng röð í verslun Nocco Lífið Miðasala á Björk hefst á morgun Tónlist Vörur sem börnin geta erft Tíska og hönnun Ástin spyr ekki um aldur hjá þessum pörum Lífið Oprah sú valdamesta Lífið Litlu munaði að þyrlan þyrfti að nauðlenda Lífið Af og frá að fimmti þáttur hafi verið klipptur extra mikið Lífið
Textarnir á plötunni eru beinskeittir og einlægir og gefa hlustanda einstakt tækifæri til þess að kynnast hugarheimi Auðar. Sumir gagnrýnendur hafa lýst plötunni sem tímamótaplötu í íslenskri R&B-tónlist. „þessi plata hefur dafnað og fólk myndað við hana persónulega tengingu, afsakanir er mín hugarsmíði en hún er í eigu allra þeirra sem á hana hlusta” – Auður Auður vildi fá að deila þessu listaverki með aðdáendum sínum á öðru formi og ákvað því að gefa út Afsakanir nótnabók. Útsetningarnar í bókinni eru fyrir margskonar hljóðfæri, til að mynda söngrödd, píanó, hljómborð, gítar, rafmagnsgítar, bassa, fiðlu og orgel. Útsetningarnar og nótnaskrifin eru eftir tónlistarmanninn Hafstein Þráinsson (Ceasetone). Nótnabókin var gefin út í takmörkuðu upplagi, eða 100 eintökum. Hvert eintak er númerað og áritað af Auði. Í bókinni má líka finna formála sem Auður skrifaði og upplýsingar um alla þá sem komu að gerð plötunnar. Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í albumm@albumm.is.
Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í albumm@albumm.is.
Tónlist Tengdar fréttir „Ég er listamaður, ég er ekki félagsráðgjafi“ Ein skærasta stjarna íslenskrar tónlistar um þessar mundir, Auður, segir að honum sé alveg sama um gagnrýni frá fólki sem hann þekki ekki. Það hafi ekkert vægi fyrir honum en það sé hins vegar erfitt þegar fólk sem honum þykir vænt um er ósammála því sem hann er að gera. 3. október 2019 16:45 Mest lesið Var ráðskona Kára Stefánssonar þegar ástin kviknaði Lífið Áratugir af óvissu enduðu með einni setningu í ræktinni Lífið Neistaflug hjá Guggu og Flona á rúntinum Lífið Gríðarlega löng röð í verslun Nocco Lífið Miðasala á Björk hefst á morgun Tónlist Vörur sem börnin geta erft Tíska og hönnun Ástin spyr ekki um aldur hjá þessum pörum Lífið Oprah sú valdamesta Lífið Litlu munaði að þyrlan þyrfti að nauðlenda Lífið Af og frá að fimmti þáttur hafi verið klipptur extra mikið Lífið
„Ég er listamaður, ég er ekki félagsráðgjafi“ Ein skærasta stjarna íslenskrar tónlistar um þessar mundir, Auður, segir að honum sé alveg sama um gagnrýni frá fólki sem hann þekki ekki. Það hafi ekkert vægi fyrir honum en það sé hins vegar erfitt þegar fólk sem honum þykir vænt um er ósammála því sem hann er að gera. 3. október 2019 16:45