Oft hefur verið sagt að framhjáhald og framhjáhald sé ekki það sama og er þá verið að vísa til eðli svikanna og jafnvel forsögu sambandsins. Er manneskjan búin að eiga í ástarsambandi við annan aðila í einhvern tíma eða var þetta eitthvað sem gerðist í hita leiksins? Þarna getur verið mikill stigsmunur á sem hefur áhrif á hversu auðvelt eða erfitt það reynist fólki að fyrirgefa.
Makamál spurðu lesendur Vísis (þá sem hafa haldið framhjá) um ástæðu framhjáhaldsins. Könnunin var kynjaskipt til þess að sjá hvort einhver afgerandi munur væri á svörum karla og kvenna. Rúmlega 3200 manns tóku þátt í könnuninni.
Aðalástæða karla, miðað við þessa könnun, er meira eða fjölbreyttara kynlíf og fast á hæla hennar kemur óhamingja í sambandinu.
Hjá konum er óhamingja í sambandinu númer eitt og svo meira eða fjölbreyttara kynlíf númer tvö. Svörin eru þó aðeins dreifðari hjá konunum. Athygli vakti að 16% kvenna segja þrá í aðdáun og/eða athygli vera ástæðu framhjáhaldsins á móti 9% karla.
Þó svo í þessari könnun hafi bara verið hægt að velja eina ástæðu er vert að nefna að ofast er ástæða framhjáhalds sambland af nokkrum atriðum.
Hægt er að sjá nákvæmari niðurstöður* hér fyrir neðan.
KARLAR (1610)
Kynlífið - Vil meira og/eða fjölbreyttara kynlíf - 25%
Leit að spennu - 15%
Óhamingja í sambandinu - 20%
Þrá í aðdáun og/eða athygli - 9%
Gerðist í hita leiksins undir áhrifum - 18%
Hefnd - maki minn hélt framhjá mér - 5%
Varð ástfanginn af annari manneskju - 8%
KONUR (1657)
Kynlífið - Vil meira og/eða fjölbreyttara kynlíf - 17%
Leit að spennu - 10%
Óhamingja í sambandinu - 23%
Þrá í aðdáun og/eða athygli - 16%
Gerðist í hita leiksins undir áhrifum - 15%
Hefnd - maki minn hélt framhjá mér - 7%
Varð ástfangin af annari manneskju - 12%
*Tekið skal fram að niðurstöður byggjast eingöngu á svörum lesenda Vísis og því ekki hægt að alhæfa um niðurstöður. Kannanir Makamála eru ætlaðar til skemmtunar og til að vekja umræðu og athygli á ýmsum málefnum.