Lífið

Byrjar á að taka í gegn svefnherbergi í tilvistarkreppu

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Soffía Dögg heldur úti bloggsíðu og Facebook hóp undir nafninu Skreytum hús. Þættirnir hennar slóu í gegn hér á Vísi.
Soffía Dögg heldur úti bloggsíðu og Facebook hóp undir nafninu Skreytum hús. Þættirnir hennar slóu í gegn hér á Vísi. Skreytum hús

„Í þessari þáttaröð má fólk eiga von á því sama og í þeirri fyrri. Við reynum að finna hagkvæmar og sniðugar lausnir, og að gera hvert rými fallegt og þannig að það henti vel íbúum,“ segir Soffía Dögg Garðarsdóttir.

Á morgun verður sýndur á Vísi fyrsti þátturinn í annarri þáttaröð af Skreytum hús. Þættirnir birtast alla miðvikudaga á Vísi og fara samhliða því inn á Stöð 2+ efnisveituna.

„Tökur hafa gengið ágætlega, svona með tilliti til ástandsins og svoleiðis. Það eru alltaf hálfgerðar skoranir þegar maður er að vinna þetta svona á skrítnum tímum. En grímur, fjöldatakmarkanir og Covidpróf eru bara orðin staðalbúnaður,“ segir Soffía og hlær.

Soffía Dögg og Rut skelltu sér í verslunarleiðangur fyrir breytinguna sem sýnd verður í fyrsta þættinum.Skreytum hús

„Í þessari þáttaröð sjáum við meðal annars strákaherbergi, sem fjölmargir báðu um, herbergi fyrir tvö börn saman, og svo sjónvarpsrými sem nýtist sem skrifstofa líka - svona til þess að bregðast við breyttum aðstæðum í þjóðfélaginu.“

Fyrsti þátturinn dettur inn á Vísi í fyrramálið og þar fá áhorfendur að kynnast Rut, sem er nýflutt í nýbyggingu í Úlfarsárdal ásamt fjölskyldunni.

„Við tökum fyrir hjónaherbergið en það var í svona nettri tilvistarkreppu og var eitt af þessum rýmum sem sitja á hakanum, eins og svo oft vill verða með hjónaherbergi. Við setjum svo oft púðrið í að klára stofur og eldhús, og svo auðvitað krakkaherbergin, að hjónaherbergin vilja bara gleymast.“

Soffía segir að það sé ótrúlega gaman að vera komin aftur af stað með Skreytum hús þættina.

„Ég er bara ótrúlega kát og spennt að vera að vinna verkefni með góðu fólki, og finnst bara dásamlegt að hjálpa fólki að láta rýmin þeirra verða enn fallegri og betri, en kannski þeim gat grunað.“

Hægt er að horfa á fyrstu þáttaröðina af Skreytum hús HÉR á Vísi


Tengdar fréttir

Skreytum hús: Með­ferðar­heimili gert að fal­legu hreiðri

„Hlaðgerðarkot er elsta nústarfandi meðferðarstofnun landsins,“ segir Helga Lind Pálsdóttir forstöðukona. Í fimmta þætti af hönnunarþáttunum Skreytum hús er kvennaálman á Hlaðgerðarkoti tekin í gegn. Soffía Dögg Garðarsdóttir sá strax að þarna þyrfti að taka mikið til hendinni og vildi hún endilega leggja sitt af mörkum.

Skreytum hús: Barnaherbergjum breytt í ævintýraheim

„Þegar við fluttum inn þá máluðum við og komumst svo ekkert lengra,“ segir Alda Dröfn Guðbjörnsdóttir „um barnaherbergin tvö á heimilinu sem var tekið fyrir í nýjasta þætti af Skreytum hús. Ekkert var á veggjum og herbergin því ekki fullkláruð. Skápahurðir voru farnar að gulna og gardínustangir ekki í réttri hæð.

Skreytum hús: Hjónaherbergið gert „rómó og kósý“

„Við erum búin að vera að græja og gera ýmislegt. Við fluttum hingað inn fyrir tveimur árum , segir Ásdís Hanna Pálsdóttir en hún býr ásamt eiginmanni og fjórum börnum í Hafnarfirði. „Hjónaherbergið hefur alltaf setið á hakanum.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.