„Já pabbi sat aldrei kyrr en mamma var jarðbundnari. Þau voru ótrúlega flott saman,“ segir systirin Kristín María Dýrfjörð og hlær einnig.
Móðir þeirra, Berglind Guðbrandsdóttir, hlustar róleg á og ekki er laust við að hún brosi út í annað.
„Þetta tókst með mikilli vinnu en það voru engin laun eða neitt þvíumlíkt lengi vel. Simmi vann í tveimur öðrum vinnum til að framfleyta okkur,“ segir Berglind.
Í helgarviðtali Atvinnulífsins heyrum við söguna á bakvið fjölskyldufyrirtækið Te og kaffi.
Ung hjón í ævintýraleit
Sem ung hjón ákváðu Sigmundur og Berglind að halda út í heim á vit ævintýranna.
Fyrsti áfangastaður var Gautaborg í Svíþjóð.
„Sigmundur fékk vinnu sem matreiðslumeistari á flottu hóteli og í Gautaborg kynntumst við því að kaupa te og kaffi í litlum sérverslunum. Snemma fórum við því að rista kaffi í ofninum heima,“ segir Berglind.
Hjónin ílentust í Gautaborg þar fæddist Kristín María árið 1982.
Við komum heim í atvinnuleysi í árslok 1982. Með fullt af prufum af te og ákveðin í að stofna fyrirtæki.
Til þess að geta það vann Simmi við byggingar á daginn en í Smiðjukaffi á næturnar og síðar á pöbb við Hverfisgötu.“

Bankastjórinn hló
Árið 1984 opnaði Te og kaffi á Barónstíg.
Til að fjármagna fyrstu innkaup var 160 þúsund króna lán slegið hjá Útvegsbankanum.
Holli tengdapabbi skrifaði upp á lánið og ég man að bankastjóranum fannst það fyndið að við ætluðum að fara að flytja inn te,“
segir Berglind.
Lagerinn var heima og á meðan Simmi vann tvöfalda vinnu, sá Berglind um reksturinn.
„Já ég man eftir því að einhver sagði við pabba að hann þyrfti að vera duglegur að vinna svo mamma gæti sinnt áhugamálinu sínu,“ segir Kristín María og hlær.
Stemningin í bakhúsinu
Árið 1986 hélt Reykjavíkurborg upp á 200 ára afmæli sitt.
Te og kaffi var þá fengið til að reka krambúð í sex vikur í miðborginni og fékk 200 þúsund krónur greiddar fyrir.
Þetta fjármagn var notað sem innborgun á fyrstu greiðslu fyrir nýtt húsnæði:
Bakhús að Laugavegi 24.
Þá var fjárfest í Espressovél sem var á þeim tíma sú þriðja sinnar tegundar sem var flutt til landsins.
Í bakhúsinu var Espressobar þar sem viðskiptavinir sátu á barstólum, allir máttu reykja og umhverfið þótti afar heimsborgaralegt.
Enda sóttu þangað margar listaspírur, leikarar og tónlistarfólk.
Alls kyns vörur voru til sölu aðrar en te og kaffi.
Til dæmis katlar og könnur, postulín, dúkkulísur, fægiskóflur, tannbursta og fleira.
Vörurnar voru ýmist hengdar upp í loft eða í hillum.
Árið 1987 keyptum við húsnæði í Skútuhrauni og um tveimur árum síðar byrjuðum við að rista kaffi. Simmi vann enn annars staðar á daginn en ristaði kaffi á næturnar,“
segir Berglind.
Umsvifin fóru þó að aukast. Ekki síst þegar veitinga- og kaffihús fóru að kaupa sælkerakaffi.
Sá sem reið á vaðið með það var Rúnar Marvinsson matreiðslumeistari árið 1986. Þá rak hann veitingastaðinn við Tjörnina.
Loks kom að því að Sigmundur gat hætt að vinna annars staðar og fór að einbeita sér alfarið að kaffibrennslunni.
Um og upp úr 1990 fór kaffihúsunum í borginni að fjölga og staðir eins og Sólon Islandus, Hressó og kaffi Ópera urðu til.
Þá jókst framleiðslan í kaffibrennslunni smátt og smátt, sem opnaði tækifæri til að selja til matvöruverslana.

Önnur kynslóðin
„Átta ára var ég að selja pönnur og katla í portinu á Laugaveginum. Ég fékk líka oft að renna kreditkortinu í gegnum gömlu kreditkortavélina sem var ekkert smá gaman,“ segir Kristín María og bætir við: „Ég fór oft í Vínberið að kaupa mjólk í reikning eða að sækja eitthvað í verslunina Brynju og fleira.“
Sunna Rós er fædd 1989 og segir æskuminningarnar margar og skemmtilegar.
Ég man til dæmis eftir því þegar að við vorum á hvolfi að útbúa jólakörfur öll jól fyrir búðirnar okkar.
Mér fannst líka alltaf svo gaman að vigta te og fikta í ritvélinni hans pabba.
Ég man líka að hann geymdi nammi í skúffu númer tvö í skrifborðinu“
segir Sunna og hlær.

Heima fyrir muna dæturnar vel eftir því að allir voru að hjálpast að við að líma og föndra hvern einasta te- eða kaffipoka.
Því þannig voru umbúðir Te og kaffis frágengnar þá.
Nær unglingsárunum, fóru systurnar síðan að afgreiða og starfa meira við framleiðsluna í Te og kaffi.
Sem þeim þótti mikill kostur í samanburði við unglingavinnuna.
„Ómægod, afi er kominn!“
Einn dyggasti stuðningsmaður fyrirtækisins var afi Holli, eða Hólm Dýrfjörð, faðir Sigmundar.
„Afi Holli kom alltaf á hjóli og var með gyllta kaffipoka sem endurskinsmerki á stýrinu,“ segir Sunna og hlær.
Já þetta var oft bara „Ómægod, afi er kominn“ því hann hélt áfram að koma þar til hann var orðinn 95 ára og þá nánast blindur,“
segir Kristín og systurnar rifja upp að undir það síðasta fólst oft mesta áskorunin í að finna verkefni fyrir gamla manninn.
Því hann hreinlega elskaði að hjálpa til!
Eitt af því sem afa Holla hugkvæmdist var að nota skaftið af regnhlífum til að opna tepokana, sem bæði var seinlegt og gat skorið í húðina. Með regnhlífaskaftinu var bæði hægt að pakka hraðar og án þess að fá sár.
Systurnar hlæja af upprifjuninni, enda gott dæmi um hversu fábrotin öll aðstaðan var í framleiðslunni fyrstu árin.

Tengdasonurinn
Halldór Guðmundsson, eða Dóri, er eiginmaður Kristínar Maríu og í dag framkvæmdastjóri kaffihúsanna.
Dóri og Kristín byrjuðu saman ung og Dóri þá einnig að vinna í kaffibrennslunni.
Í kennaraverkfalli upp úr aldamótunum, spurði Dóri Sigmund hvort hann gæti fengið vinnu á kaffihúsinu.
Sigmundur samþykkti það með einu skilyrði:
Dóri yrði að taka þátt í Íslandsmóti kaffibarþjóna!
Næstu tvo mánuði var æft stíft.
Þarna var þessi sælkerakaffimenning að byrja, ekki bara hér heldur einnig erlendis. Þarna voru menn að æfa sig í að gera listaverk í mjólkina og fleira sem þótti afar nýtt þá,“
segir Dóri.
Svo vel gekk á Íslandsmótinu að áður en Dóri vissi af, var hann kominn til Boston með landsliði Íslands á heimsmeistaramót kaffibarþjóna.

Þríeykið bankar upp á
Árið sem Te og kaffi fagnaði 20 ára afmæli sínu, barst fjölskyldunni óvænt erindi:
Þrír útskriftarnemendur í Listaháskóla Íslands höfðu samband og spurðu hvort þau mættu kynna lokaverkefnið sitt en það voru þau Ísak Winther, Jóhanna Svala Rafnsdóttir og Pétur Guðmundsson.
Fundur var ákveðinn að kvöldi til í Stapahrauni, en þá var framleiðslan flutt þangað.
Og við sátum bara og sögðu váááá!“
segir Kristín María og hópurinn kinkar kolli eins og samróma.
Lokaverkefni útskriftarnemanna reyndist vera vörumerki fyrir Te og kaffi vörulínuna.
Þetta vörumerki er enn í dag það merki sem allir þekkja á vörum og kaffihúsum Te og kaffi.

Barátta upp á líf og dauða
Þegar talið berst að bankahrunsárinu 2008 koma sárar minningar upp í hugann hjá fjölskyldunni.
Því í sömu viku og Geir Haarde blessaði Ísland var Sigmundur greindur með ólæknandi krabbamein.
Gengið féll, útistandandi skuldbindingar við erlenda birgja snarhækkuðu og reksturinn þyngdist.
Við fengum öll sjokk þegar pabbi greindist og ég man varla eftir fyrstu dögunum eftir bankahrunið því maður varð bara svo hræddur um hann.
En á svipstundu þurftu allir upp á dekk.
Því það átti að hrifsa af okkur fyrirtækið og við urðum að hjálpast að og reyna að bjarga fyrirtækinu,“
segir Kristín og hópurinn kinkar kolli.
„Já það var mikil grimmd hjá bönkunum og þetta voru erfiðir tímar,“ segir Berlgind og bætir við:
En á sjúkrahúsinu sat ég hjá Simma og skrifaði niður allt sem ég átti að segja við lögfræðingana og bankamennina og þannig gekk þetta fyrir sig.“

Lykilmenn
Árið 2013 tók Sigmundur ákvörðun um að vilja stíga til hliðar sem framkvæmdastjóri.
Sá sem tók við því kefli er núverandi framkvæmdastjóri Te og kaffi, Guðmundur Halldórsson.
Hann hafði þá starfað í Te og kaffi frá árinu 2004 en þá var hann ráðinn sem fyrsti sölumaður fyrirtækisins.
Pabbi vildi helst ráða fólk úr sveit því hann sagði það fólk duglegast til vinnu. Gummi var því ráðinn um hæl á sínum tíma,“
segir Kristín og bætir við að þeim hafi öllum þótt það liggja í augum uppi að Gummi tæki við framkvæmdastjórastöðunni þegar sú umræða kom upp.
Annar lykilmaður tók við stjórnunarstöðu en það er Stefán Wernerson, framleiðslustjóri Te og kaffi.
„Stefán var þjónn á árshátíð hjá okkur en fyrir misskilning hélt hann að veislan hefði verið brúðkaupið okkar,“ segir Berglind.
Hjónin hittu Stefán síðan af tilviljun á Keflavíkurflugvelli en vissu ekki að Stefán bjó yfir mikilli verkfræðiþekkingu.
Hann spurði okkur hvernig hjónabandið gengi og þá leiðréttist misskilningurinn. Þegar við heyrðum að hann væri hættur að starfa sem þjónn, stakk Simmi upp á að hann kæmi og talaði við sig um vinnu,“
segir Berglind um ráðningu Stefáns.

Áfram fjölskyldufyrirtæki
Sigmundur lést þann 31.mars árið 2017.
Það haust var standsett ný verksmiðja fyrir framleiðsluna, með nýjum vélum, róbótum og fleira. Framleiðslugetan jókst til muna við en í dag starfa um 100 manns hjá fyrirtækinu.
„Hann dó á toppnum,“ segir Dóri um það hversu stór áfangi náðist með nýju verksmiðjunni.
Kaffihúsin teljast brátt tíu því í maí er fyrirhugað að opna nýtt kaffihús í Garðabæ. Sjö eru starfrækt í Reykjavík en tvö í Kópavogi.
Þá er mikill metnaður lagður í að starfsemin nái hringrásarhagkerfinu og leggi þannig sitt á vogarskálarnar í umhverfis- og loftlagsmálum.
Mæðgurnar eru meirihlutaeigendur en lítinn hlut eiga hver um sig, Guðmundur, Stefán og Dóri.
Fjölskyldan er bjartsýn á framhaldið og sér ekki fyrir sér annað en áframhaldandi uppbyggingu.
Enda þekkir fólk vel sælkerakaffi og te í dag, ólíkt því sem áður var.
En í dag eru það krakkarnir sem draga vagninn,“
segir Berglind að lokum.
Gamla myndin
