Gamalt SSSól lag í nýjum búningi Ritstjórn Albúmm.is skrifar 30. apríl 2021 14:31 Ingvar Valgeirsson og Eva Björnsdóttir. Nú á dögunum sendu þau Eva Björnsdóttir söngkona og Ingvar Valgeirsson gítarleikari frá sér lagið Ef ég væri Guð. Lagið er gamalt SSSól-lag og er nýja útsetningin talsvert frábrugðin þeirri gömlu. Eva er feykiraddsterk Keflavíkurmær og söng t.d. með hljómsveitinni The Shady sem gaf út plötuna „Aren´t You That Girl…?“ árið 2017, en Ingvar hefur bæði leikið sem trúbador og verið söngvari og gítarleikari með Swizz síðustu árin. Eva og Ingvar hafa spilað saman af og til síðustu misserin, en ákváðu að skella sér í hljóðver og taka eilítið upp. Síðar á árinu er svo von á frumsömdu efni frá þeim – auk nýs efnis frá Ingvari og Swizz. watch on YouTube Voru hæg heimatökin hjá Ingvari að hóa í hljómsveitarfélaga sína úr hljómsveitinni Swizz, þá Kristinn Gallagher bassaleikara og Helga Víkingsson trommara til að spila með og voru upptökur í hæfum höndum Kristins Sturlusonar. Lagið Ef ég væri Guð er nú komið bæði á Spotify og Youtube og hefur einnig fengið að hljóma eitthvað á öldum ljósvakans. Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í albumm@albumm.is. Tónlist Mest lesið Hræðilegir dagar í Partylandi Lífið samstarf Hilmir Snær svarar gagnrýnendum Menning Hvað veistu um… pitsur? Lífið Sturluð skvísulæti í stórafmæli Tíska og hönnun Ómetanlegt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum Bíó og sjónvarp Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Lífið Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Lífið Gengst við dulnefninu en vill samt ekki kannast við það Menning Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Lífið Chris Brown á skilorði Lífið
Eva er feykiraddsterk Keflavíkurmær og söng t.d. með hljómsveitinni The Shady sem gaf út plötuna „Aren´t You That Girl…?“ árið 2017, en Ingvar hefur bæði leikið sem trúbador og verið söngvari og gítarleikari með Swizz síðustu árin. Eva og Ingvar hafa spilað saman af og til síðustu misserin, en ákváðu að skella sér í hljóðver og taka eilítið upp. Síðar á árinu er svo von á frumsömdu efni frá þeim – auk nýs efnis frá Ingvari og Swizz. watch on YouTube Voru hæg heimatökin hjá Ingvari að hóa í hljómsveitarfélaga sína úr hljómsveitinni Swizz, þá Kristinn Gallagher bassaleikara og Helga Víkingsson trommara til að spila með og voru upptökur í hæfum höndum Kristins Sturlusonar. Lagið Ef ég væri Guð er nú komið bæði á Spotify og Youtube og hefur einnig fengið að hljóma eitthvað á öldum ljósvakans. Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í albumm@albumm.is.
Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í albumm@albumm.is.
Tónlist Mest lesið Hræðilegir dagar í Partylandi Lífið samstarf Hilmir Snær svarar gagnrýnendum Menning Hvað veistu um… pitsur? Lífið Sturluð skvísulæti í stórafmæli Tíska og hönnun Ómetanlegt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum Bíó og sjónvarp Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Lífið Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Lífið Gengst við dulnefninu en vill samt ekki kannast við það Menning Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Lífið Chris Brown á skilorði Lífið