Eðlilega getum við gert eitthvað, sagt eitthvað eða verið á einhvern hátt sem fær makann til að fara hjá sér, verða vandræðalegan eða jafnvel skammast sín.
En hvenær er það orðið regla en ekki undantekning að þú finnir fyrir því að maki þinn skammist sín fyrir þig?
Þegar makinn fer stundum hjá sér eða verður vandræðalegur yfir einhverju sem þú gerir er eitt en þegar þér líður eins og hann raunverulega haldi þér niðri á einhvern hátt eða skammist sín fyrir þig er annað og öllu alvarlega.
Hér fyrir neðan eru nokkur dæmi sem gætu gefið til kynna að maki þinn skammist sín á einhvern hátt fyrir þig.
- Lætur þig finna fyrir óöryggi í kringum annað fólk
- Forðast það að sækja viðburði með þér
- Er alltaf að setja út á þig fyrir framan fólk
- Reynir að stjórna því hvernig þú lítur út, klæðir þig eða berð þig.
- Forðast það að kynna þig fyrir öðru fólki
- Birta meðvitað ekki myndir af þér
Allt getur þetta verið hluti af ákveðinni stjórnun í sambandi og andlegu ofbeldi sem alltaf ætti að taka alvarlega.
Spurningu vikunnar er að þessu sinni beint til allra þeirra sem eru eða hafa verið í ástarsambandi.