Fjögur rauð fyrir norðan og tíu mörk í nágrannaslag Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 1. maí 2021 18:59 Pétur Theodór tryggði Gróttu áfram í 32-liða úrslit Mjólkurbikarsins. Vísir/Haraldur Sjö síðdegisleikjum er nú lokið í annari umferð Mjólkurbikars karla. Völsungur, Fram, Grótta, KF, Sindri, Kári og KFS eru öll komin í 32 liða úrslit ásamt Víking Ólafsvík og Vestra eftir leiki dagsins. Völsungur tók á móti nágrönnum sínum í Hömrunum og tóku þá vægast sagt í kennslustund. Lokatölur 9-1, en Sæþór Olgerisson skoraði fimm mörk fyrir Völsunga. Aron Þórður Albertsson og Fred sáu um markaskorunina þegar 1. deildarlið Fram heimsótti 3. deildarlið Víðis. Lokatölur 2-0, gestunum í vil. Þróttur Vogum sem spilar í 2. deild tók á móti 1. deildarliði Gróttu. Staðan 1-1 í hálfleik, en Pétur Theodór Árnason setti tvö mörk í seinni hálfleik og tryggði gestunum 1-3 sigur. Dalvík/Reynir og KF mættust í grannaslag og þar var mikill hasar. Gestirnir í KF fengu að líta rautt spjald á 68. mínútu, en tóku svo forystuna 16 mínútum seinna. Allt stefndi í sigur gestanna, en á fimmtu mínútu uppbótartíma jöfnuðu heimamenn, og grípa þurfti til framlengingar. Framlengingin bauð upp á þrjú mörk og þrjú rauð spjöld. Heimamenn kræktu sér í tvö rauð spjöld og skoruðu eitt mark, á meðan að gestirnir skoruðu tvö og fengu eitt rautt spjald. Niðurstaðan því 2-3 sigur KF. Öll úrslit síðdegisins
Völsungur tók á móti nágrönnum sínum í Hömrunum og tóku þá vægast sagt í kennslustund. Lokatölur 9-1, en Sæþór Olgerisson skoraði fimm mörk fyrir Völsunga. Aron Þórður Albertsson og Fred sáu um markaskorunina þegar 1. deildarlið Fram heimsótti 3. deildarlið Víðis. Lokatölur 2-0, gestunum í vil. Þróttur Vogum sem spilar í 2. deild tók á móti 1. deildarliði Gróttu. Staðan 1-1 í hálfleik, en Pétur Theodór Árnason setti tvö mörk í seinni hálfleik og tryggði gestunum 1-3 sigur. Dalvík/Reynir og KF mættust í grannaslag og þar var mikill hasar. Gestirnir í KF fengu að líta rautt spjald á 68. mínútu, en tóku svo forystuna 16 mínútum seinna. Allt stefndi í sigur gestanna, en á fimmtu mínútu uppbótartíma jöfnuðu heimamenn, og grípa þurfti til framlengingar. Framlengingin bauð upp á þrjú mörk og þrjú rauð spjöld. Heimamenn kræktu sér í tvö rauð spjöld og skoruðu eitt mark, á meðan að gestirnir skoruðu tvö og fengu eitt rautt spjald. Niðurstaðan því 2-3 sigur KF. Öll úrslit síðdegisins Völsungur – Hamrarnir 9:1 Víðir – Fram 0:2 Þróttur Vogum – Grótta 1:3 Dalvík/Reynir – KF 2:3 (frl.) Fjarðabyggð - Sindri 0:1 Kári – Skallagrímur 5:1 KFS – Kría 4:0
Völsungur – Hamrarnir 9:1 Víðir – Fram 0:2 Þróttur Vogum – Grótta 1:3 Dalvík/Reynir – KF 2:3 (frl.) Fjarðabyggð - Sindri 0:1 Kári – Skallagrímur 5:1 KFS – Kría 4:0
Mjólkurbikarinn Mest lesið Foreldrarnir vissu ekki að hún væri bardagakona Sport „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Enski boltinn „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ Enski boltinn Geir fer aftur í Vesturbæinn Íslenski boltinn Tímabært að breyta til Handbolti Enn erfiðara að komast á heimsleikana í CrossFit á næsta ári Sport Blóðug hlaupaferð hjá Guðlaugu Eddu Sport Heimsklassa afgreiðsla hjá Sveindísi um helgina Fótbolti Kallaði dómarann tík og rúmlega það Körfubolti Verstappen áfram hjá Red Bull Formúla 1 Fleiri fréttir Segist enn ekki hafa fengið samningstilboð frá Liverpool Geir fer aftur í Vesturbæinn Heimsklassa afgreiðsla hjá Sveindísi um helgina Dagur Dan og félagar í undanúrslit eftir sigur á liðinu sem stoppaði Messi „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ FH-ingar kynntu Birki og Braga „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Atli og Eiður í KR Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Real Madrid ekki í neinum vandræðum með Leganés Steve Cooper látinn taka pokann sinn hjá Leicester Sædís tvöfaldur meistari í fyrstu tilraun Hákon mættur aftur til leiks Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Jafnað í blálokin í uppgjöri Keflvíkinga í Hollandi Amanda lagði upp í dýrmætum sigri og Kolbeinn nær toppnum Framarar sótt fjóra bita í næstu deild „Hefurðu enga sómakennd?“ Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Diljá Ýr á skotskónum og OH Leuven á toppinn Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Celta sótti jafntefli gegn tíu Börsungum Haraldur Árni áfram með Grindavík Sveindís funheit inn af bekknum og setti tvö Bodø/Glimt með langþráðan sigur Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Gamla konan áfram taplaus Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Sjá meira