Helgi Björns ætlar að opna veitingastað og skemmtistað á Hótel Borg Stefán Árni Pálsson skrifar 7. maí 2021 12:31 Helgi Björnsson er að setja á laggirnar veitingastað og dansstað á Hótel Borg. „Ég hef haft mjög gaman af þessu og þetta hefur verið ótrúlega gott tækifæri að geta komið fram í þessu ástandi þar sem það hafa verið fá tækifæri til þess,“ segir tónlistarmaðurinn Helgi Björnsson um þær beinu útsendingar sem hann hefur komið að síðastliðið árið á laugardagskvöldum í Sjónvarpi Símans.
Helgi gaf í dag út nýtt lag sem ber nafnið Ekki ýkja flókið. Lagið er samið af Helga og Jóni Jónssyni en textinn er eftir Einar Lövdahl Gunnlaugsson. Upptökustjórn var í höndum Arnars Guðjónssonar. Helgi var gestur hjá Ívari Guðmundssyni á Bylgjunni í morgun. Hann segist vera nokkuð vongóður fyrir sumrinu. „Það eru allir orðnir spenntir til þess að fá að gera eitthvað. Þetta er búið að vera ótrúlega erfitt á köflum að geta ekkert slett úr klaufunum. Nú bíður maður bara spenntur, ég er með fimm uppselda tónleika í Háskólabíó sem áttu að vera í fyrra og í vor. Núna erum við búnir að fresta þeim ótiltekið og bíðum bara spenntir til að fá að setja þá í gang.“ Undanfarnar vikur hefur Helgi verið að semja tónlist og taka heimilið í gegn. „Svo hef ég verið að undirbúa Hótel Borg. Við ætlum að vera með veitingastað og skemmtistað þar. Það er ekki komin dagsetning og þurfum aðeins að sjá til með þetta. Þetta þarf að vera almennilega gert. Við þurfum að vera með algjöra afléttingu á takmörkunum svo að við getum boðið þangað tvö til þrjú hundruð manns. Við ætlum að vera með dansleiki, húsband og allur pakkinn. Fólk getur komið og tekið sveiflu og snúning.“ Nýja lag Helga var frumflutt í þættinum og má heyra það hér að neðan.
Veitingastaðir Reykjavík Mest lesið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Lífið Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Sahara Ray látin Lífið Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Lífið Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni Tónlist Verður að geta hent sér í hnébeygju Tíska og hönnun Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Lífið Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Fleiri fréttir Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Sjá meira