Lífið

Alexandra og Gylfi eignuðust stúlku

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Alexandra og Gylfi á EM í Frakklandi 2016.
Alexandra og Gylfi á EM í Frakklandi 2016. Clive Rose/Getty

Hjónin Alexandra Helga Ívarsdóttir náttúrukokkur og Gylfi Þór Sigurðsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, eignuðust stúlku síðasta miðvikudag.

Frá þessu greinir Alexandra Helga á Instagram-reikningi sínum. Stúlkan hefur þegar fengið nafnið Melrós Mía Gylfadóttir og er fyrsta barn þeirra hjóna.

Alexandra og Gylfi giftu sig í júní á þarsíðasta ári og héldu þau íburðarmikið brúðkaup við Como-vatn á norður Ítalíu. Þau höfðu verið trúlofuð í um ár þegar þau giftu sig.

Gylfi og Alexandar eru búsett í Englandi, en Gylfi leikur fyrir enska úrvalsdeildarliðið Everton.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.