Lífið

#Égtrúi: „Nú þurfum við bræður, synir og feður að tala saman“

Ása Ninna Pétursdóttir og Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifa
Mörg þekkt andlit sjást í áhrifaríku myndbandi sem gefið var út í morgun til stuðnins þolendum. 
Mörg þekkt andlit sjást í áhrifaríku myndbandi sem gefið var út í morgun til stuðnins þolendum. 

Hlaðvarpið Eigin konur gaf út nýtt myndband í dag til stuðnings þolenda ofbeldis. Handritið gerðu þær Edda Falak og Fjóla Sigurðardóttir ásamt leikstjóra myndbandsins, Davíð Goða Þorvarðarsyni.

Þetta áhrifaríka myndband  kemur út í kjölfar þess að síðustu daga hefur ný #metoo bylgja tekið yfir samfélagið. Myndbandið ber yfirskriftina Ég trúi. Meðal þeirra sem koma fram og lýsa yfir stuðningi við þolendur ofbeldis eru Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra og Víðir Reynisson yfirlögleguþjónn. Einnig koma fram Kamilla Ívarsdóttir og Eva Mattadóttir en fjallað hefur verið um þeirra reynslu af ofbeldi hér á Vísi. 

Viðbrögð við máli Sölva Tryggvasonar urðu til þess að margir þolendur stigu fram á samfélagsmiðlum til þess að vekja fólk til umhugsunar og hvetja til þess að rödd þolenda fái að heyrast, þeim sé trúað. 

Ásamt þeim Eddu og Fjólu, þáttastjórnanda Eigin konur, koma fram Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn, Kristófer Acox, Kristján Helgi Hafliðason, Saga Garðarsdóttir, Eva Mattadóttir, Sara Mansour, Álfgrímur Aðalsteinsson, Arnar Dan Kristjánsson, Donna Cruz, Erna Kristín (Ernuland), Tinna Óðinsdóttir, Kolbrún Birna H. Bachmann, Helga Sigrún, Aron Can, Þorsteinn V. Einarsson (Karlmennskan), Pálmar Ragnarsson, Kamilla Ívarsdóttir og systkinin Magnús Sigurbjörnsson og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir.

Ég trúi

  • Ég er þolandi ofbeldis og ég trúi þér
  • Ég er vinkona og þolandi ofbeldis 
  • Ég trúi ykkur 
  • og ég styð ykkur
  • Ég trúi 
  • Ég trúi þolendum
  • Ég trúi 
  • Ég trúi
  • Ég trúi og ég styð ykkur 
  • Ég er stolt af ykkur
  • og ég er þakklát
  • Ég er vinkona
  • Ég er maki
  • Ég er þolandi
  • Ég er þolandi
  • Ég trúi þolendum
  • Ég þarf ekki að skilja til að hlusta
  • Nú þurfum við bræður synir feður að tala saman
  • Strákar, tökum þátt í umræðunni
  • Ég er þolandi ofbeldis
  • Ég trúi þér
  • Ég trúi þér
  • og ég styð ykkur

Tengdar fréttir

Hótaði að drepa Kamillu og fjöl­skyldu hennar ef hún færi

Kamilla Ívarsdóttir hefur þurft að þola gróft ofbeldi af hendi fyrrverandi kærasta síns. Hann var í mars á þessu dæmdur í 12 mánaða fangelsi fyrir fólskulega líkamsárás á hana í október síðastliðinn. Kamilla var þá 17 ára. Hún hefur nú kært hann fyrir aðra árás.

Of ung til að átta sig á að hún væri í of­beldis­sam­bandi

Kamilla Ívarsdóttir þurfti að þola gróft ofbeldi af hendi fyrrverandi kærasta síns. Hún var fyrsti gestur nýs hlaðvarpsþáttar, Eigin konur, sem er í umsjón Eddu Falak og Fjólu Sigurðardóttur. Í þættinum ræðir Kamilla ítarlega um ofbeldissamband sem hófst snemma á táningsárum hennar. Þegar fram líða stundir vill hún hjálpa konum í sömu sporum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.