Hér er hægt að sjá hvernig hann útfærir tvo girnilega rækjuforrétti á mismunandi vegu. Réttirnir heita Cambas al ajillo og Tígrisrækjur á sedrusviðarplanka.
Aðferð og uppskrift er hægt að nálgast fyrir neðan klippuna.
Gambas al ajillo
Þessi forréttur slær alltaf í gegn í matarboðum og er einstaklega fallegur. Ég ber hann fram í 16 sm pottjárnspönnu og hver gestur fær pönnu með fimm rækjum. Þið getið auðvitað notað stærri pönnu og valið ykkar magn af rækjum fyrir hvern gest.
- Rækjur
-
- 20 tígrisrækjur
- Olía
- 10 hvítlauksgeirar
- Heill stór rauður chilli
- 30 g steinselja
- 1 tsk flögusalt
- Snittubrauð
- Aðferð
- Kyndið grillið í 200 gráður.
- Hálffyllið pottjárnspönnu af olíu. Ég nota 16 sm pönnu.
- Skerið hvítlauk og chilli í þunnar sneiðar og saxið steinseljuna smátt. Bætið út á pönnuna ásamt salti.
- Setjið pönnuna á beinan hita og hitið þar til olían er orðin heit. Farið mjög varlega með olíu á grilli og farið aldrei frá því.
- Bætið rækjunum út á pönnuna og eldið í tíu sekúndur. Snúið rækjunum við og takið pönnuna af grillinu. Steypujárnspönnur halda hita mjög vel og því klárast eldunin á rækjunum þótt pannan sé ekki lengur á grillinu.
- Berið réttinn fram kraumandi í pönnunni og leyfið honum að klára að eldast fyrir framan gestina. Gott er að skera niður og rista snittubrauð og dýfa því í olíuna á pönnunni á meðan borðað er.

Tígrisrækjur á sedrusviðarplanka
- Rækjur
-
- 10 tígrisrækjur
- 30 g steinselja
- 2 hvítlauksgeirar
- Hálfur chilli
- ½ dl olía
- Sedrusviðarplanki frá Weber
- Snittubrauð
- Aðferð
- Kyndið grillið í 250 gráður og setjið plankann í bleyti í 30 mínútur.
- Fínsaxið steinselju, hvítlauk og chilli og setjið í skál ásamt olíu. Bætið rækjunum út í, blandið vel saman og látið marinerast í 30 mínútur.
- Raðið rækjunum á plankann og grillið á beinum hita í tíu mínútur eða þar til þær eru tilbúnar.
- Berið rækjurnar fram með snittubrauði.

Hér fyrir neðan er hægt að nálgast klippur af skemmtilegum uppskriftum úr þáttunum en fyrir áhugasama er hægt að sjá alla fyrri þætti BBQ kóngsins á Stöð 2+.
Reykt kúrekakássa í steypujárnspotti
Reykt Texas-kalkúnabringa með BBQ-sinnepssósu
Lax á sedrusviðarplatta