Leikjavísir

Yfirtakan: Steinoriz spilar Minecraft

Samúel Karl Ólason skrifar
187511956_10157863744971651_4824249835795369385_n

Þorsteinn Jón Thorlacius, eða Steinoriz, mun taka yfir Twitrás GameTíví í kvöld og spila hinn vinsæla leik, Minecraft. Nokkrir aðrir spilarar munu ganga til liðs við hann og stefna þeir á að drepa enderdrekann svokallaða á nokkrum klukustundum.

Þorsteinn sem er frá Akureyri segist lengi hafa haft mikinn áhuga á alls kyns tölvuleikjum. Skotleikjum, hlutverkaleikjum, fjölspilunarleikjum og öðrum.

Hann segist fyrst hafa spilað töluvleik á stofutölvu vinar síns árið 2007 og síðan hafi ekki verið aftur snúið. Fyrstu leikirnir sem hann spilaði voru Terrario, League of Legends, Minecraft, Runescape og Borderlands.  

Þá hefur Þorsteinn streymt mikið í gegnum tíðina og segist hafa einstaklega gaman af því. Þá hefur hann aðstoðað aðra við að halda úti streymum og þáttum.

Gamanið hefst klukkan átta á Twitchrás GameTíví.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.