Messi jafnaði leikjametið þegar Argentína komst áfram Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 22. júní 2021 09:31 Lionel Messi jafnaði leikjamet argentínska landsliðsins í nótt og bætir það í næsta leik. getty/Alexandre Schneider Lionel Messi jafnaði leikjamet argentínska landsliðsins þegar það vann Paragvæ, 1-0, í þriðja leik sínum í Suður-Ameríkukeppninni í nótt.
Messi lék sinn 147. landsleik í nótt og jafnaði þar með leikjamet Javiers Mascherano, fyrrverandi samherja síns hjá Barcelona. Messi er jafnframt langmarkahæsti leikmaður í sögu argentínska landsliðsins með 73 mörk. Messi átti þátt í eina marki leiksins sem Papu Gómez, leikmaður Sevilla, skoraði á 10. mínútu. #CopaAmérica Messi. Di María. Papu Gómez. ¡GOLAZO de @Argentina! Argentina Paraguay #VibraElContinente #VibraOContinente pic.twitter.com/Yu2ltmFgWd— Copa América (@CopaAmerica) June 22, 2021 Argentína er með sjö stig á toppi A-riðils Suður-Ameríkukeppninnar og er komið í átta liða úrslit. Argentínska liðið hefur bara skorað þrjú mörk í fyrstu þremur leikjum sínum í keppninni en aðeins fengið á sig eitt. Argentínumenn eru með tveimur stigum meira en Sílemenn sem gerðu 1-1 jafntefli við Úrúgvæa í gærkvöldi. Eduardo Vargas kom Síle yfir á 26. mínútu en Arturo Vidal jafnaði fyrir Úrúgvæ með sjálfsmarki á 66. mínútu. Messi, sem er 34 ára, hefur ekki enn unnið stórmóti á sínum landsliðsferli ef frá er talið Ólympíugull í Peking 2008. Suður-Ameríkukeppnin átti að fara fram í Kólumbíu og Argentínu en var færð til Brasilíu á síðustu stundu.
Mest lesið Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Fótbolti Rekinn fimm dögum eftir að hafa lánað Albert Fótbolti Versti stjóri Bretlandseyja? Enski boltinn Koeman yngri fyrsti markvörðurinn til að skora tvennu Fótbolti Svona er leikjaniðurröðunin í Bestu deildinni Íslenski boltinn „Sýndum karakter og vilja“ Íslenski boltinn „Létum þetta eina mark ekkert á okkur fá“ Íslenski boltinn Júlíus öflugur í frábærum sigri Fótbolti Juventus bjargaði stigi í lokin Fótbolti Alcaraz heldur uppteknum hætti Sport Fleiri fréttir Versti stjóri Bretlandseyja? Rekinn fimm dögum eftir að hafa lánað Albert Á spítala eftir hræðilegt brot: „Þetta er morðtilraun“ Koeman yngri fyrsti markvörðurinn til að skora tvennu „Létum þetta eina mark ekkert á okkur fá“ Juventus bjargaði stigi í lokin Neitar að ræða við fjölmiðla en ætlar í framboð Júlíus öflugur í frábærum sigri Logi tapaði og Salah skoraði Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Valur 1-4 | Valskonur af botninum Svona er leikjaniðurröðunin í Bestu deildinni „Fannst við bara baka þá“ „Við viljum allir gera þetta fyrir merkið á brjóstkassanum“ „Mikilvægir leikir sem að ráða til um framhaldið“ Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum „Sýndum karakter og vilja“ „Gott að stöðva blæðinguna“ „Slakasta spilamennska okkar í sumar“ „Getum alveg unnið restina af þessum leikjum“ „Vorum on it frá upphafi til enda“ Rúnar: Reynum að halda lífi í deildinni Tómas Bent og félagar í Hearts með sigurmark á ögurstundu Allt um lokaumferðina og svona er skiptingin í Bestu deildinni Þór – FH 1-0 | Gríðarmikilvægur sex stiga sigur Uppgjörið: KA – Breiðablik 2-1 | Spyrntu sér af botninum Uppgjörið: Stjarnan – ÍBV 2-2 | Eyjamenn á botninn Uppgjörið: Víkingur – Fram 2-2 | Tíu Framarar náðu í stig Glódís leiddi Bayern til stórsigurs Jamie Vardy mættur til Burnley Diljá Ýr bikarmeistari með Brann Sjá meira