Eftirlýstur fannst við að brjótast inn í bíla Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 23. júlí 2021 06:39 Tvær líkamsárásir voru tilkynntar í nótt. Vísir/Vilhelm Tvær líkamsárásir voru tilkynntar lögreglu á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi. Tilkynnt var um líkamsárás og þjófnað í heimahúsi í miðbæ Reykjavíkur en vitað er hver gerandinn er og er málið nú í rannsókn. Hin líkamsárásin varð einnig í miðbænum en tveir voru handteknir og vistaðir í fangaklefa í þágu rannsóknar.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglu í morgun. Tilkynnt var um mann sem var að fara inn í bifreiðar sem eru ekki í eigu hans. Lögregla fór á staðinn og handtók manninn sem reyndist eftirlýstur vegna annars máls. Hann var vistaður í fangaklefa. Það var ekki margt á seiði hjá lögreglu í gærkvöld og í nótt en talsvert var þó um að ölvaðir einstaklingar væru til trafala í miðbæ. Tilkynningar um fjóra slíka bárust lögreglu og voru þrír ekki til vandræða en einn lét ekki segja sér til. Sá lét ekki segjast þegar lögregla kom á vettvang og gaf honum skýr fyrirmæli um að láta af hegðun sinni og yfirgefa vettvang. Maðurinn var því handtekinn og vistaður í fangaklefa þar til áfengisvíman rennur af honum. Einn fell af rafmagnshlaupahjóli í nótt og slasaðist. Lögregla og sjúkrabíll fóru á vettvang og hlúðu að manninum. Þá var einu rafmagnshlaupahjóli stolið í miðbænum í gærkvöld. Lögregla fór á vettvang og ræddi við eigandann en vitað er hver þjófurinn er. Einn var stöðvaður grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna og ítrekaðan akstur sviptur ökuréttindum. Hann var handtekinn en látinn laus að sýnatöku lokinni.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Íslensk kona í haldi: Hótelherbergi á Tenerife þakið blóði Innlent „Girtu þig nú í brók og horfstu í augu við sjálfan þig“ Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Breytinga að vænta á fylgi Flokks fólksins Innlent Lögreglumenn furðuðu sig á vígahnetti Innlent Boeing þota hrapaði í garð íbúðarhúss Erlent Dagur hvetur alla Sjálfstæðismenn til að strika sig út Innlent Sást á öryggismyndavélum þegar Diego var numinn á brott Innlent Á bak við auglýsingarnar um Dag en skráður í Samfylkinguna Innlent Dómsmál setur áform Heidelberg í uppnám Innlent Fleiri fréttir Flugvélar og fólk skautuðu á Hafravatni Tvær á toppnum Gasmengun helsta hættan í Grindavík „Það má Guð vita“ Bælin tóm og Diegos sárt saknað: „Hann er einn af okkur“ „Girtu þig nú í brók og horfstu í augu við sjálfan þig“ Bjartsýni í Karphúsinu og kattarins Díegó leitað Lofa fullum trúnaði ef Diego verður skilað Leitaði trúnaðarupplýsinga til að staðfesta orðróm en fékk sparkið Ákærður fyrir stunguárásina á Menningarnótt Dómsmál setur áform Heidelberg í uppnám Enn talsverður kraftur í eldgosinu Bitist af mikilli hörku um atkvæði íbúa í Ölfusi Breytinga að vænta á fylgi Flokks fólksins Krapastífla hefur myndast í Ölfusá við Selfoss Hjúkrunarfræðingar samþykktu samning Sást á öryggismyndavélum þegar Diego var numinn á brott Lögreglumenn furðuðu sig á vígahnetti Kjörin í stjórn Evrópska ungmennavettvangsins Jane Goodall hvetur stjórnvöld til að beita sér gegn hvalveiðum Opna Grindavík á ný Sérfræðingar rýna í stöðuna á lokasprettinum Ráðgjafar- og greiningarstöð fjársvelt meðan ásókn í þjónustu eykst Töluverðar líkur á leiðindaveðri á kjördag Sjálfstæðismaður vill ekki að sitt fólk striki Dag út Íslensk kona í haldi: Hótelherbergi á Tenerife þakið blóði Rannsókn lokið á stunguárásinni við Skúlagötu Fundað í Karphúsi og hraunið kælt á Reykjanesi Sjúkratryggingar auglýsa eftir rekstraraðilum hjúkrunarheimila Góður árangur af hraunkælingu við varnargarðana Sjá meira