Lífið

Bjarni féll í hoppukastala

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Bjarni segist ekki hafa getað staðist mátið og skellti sér í hoppukastala.
Bjarni segist ekki hafa getað staðist mátið og skellti sér í hoppukastala. Skjáskot

Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra virðist heldur ósjóaður í hoppuköstulum en hann brá sér í einn slíkan á dögunum.

„Ég bara varð að prófa þennan hoppukastalann…“ skrifar ráðherrann í færslu sem hann deilir á Facebook með myndbandi af sér í umræddum hoppukastala.

„Hvað á ég að gera?“ spyr ráðherrann unga kastalavini sína, sem halda á símanum.

„Þú átt að hoppa yfir þetta,“ svarar félagi hans og ráðherrann tekur tillhlaup.

Það fór ekki betur en svo að Bjarni féll eftir að hafa hoppað yfir einhvern stólpa í kastalanum og uppskar mikil hlátrasköll.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.