Nýsköpun í matvælaframleiðslu efst á baugi á ráðstefnu Íslands og Singapúr Heimsljós 3. september 2021 14:11 Auk utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra ávörpuðu ráðstefnuna meðal annarra þau Lim Thuan Kuan, sendiherra Singapúr gagnvart Íslandi, og Sigríður Snævarr, sendiherra Íslands gagnvart Singapúr. Íslandsstofa Útlit er fyrir að matarþörf heimsins muni tvöfaldast fyrir árið 2050. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra lagði áherslu á nýsköpun til að mæta vaxandi matvælaþörf í ávarpi sínu á ráðstefnu Íslandsstofu og utanríkisráðuneytisins með stjórnendum og frumkvöðlum frá Íslandi og Singapúr. Útlit er fyrir að matarþörf heimsins muni tvöfaldast fyrir árið 2050. Því verður að leita nýrra leiða til að framleiða næg matvæli fyrir ört vaxandi fólksfjölda án þess að raska jafnvægi náttúrunnar. Á fundi stjórnenda og frumkvöðla frá Íslandi og Singapúr sem fram fór í Hörpu og á vefnum var bent á ýmsar leiðir til þess. Nýsköpun og líftækni leika þar lykilhlutverk. Matvæli framtíðarinnar bíða handan við hornið. Auk utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra ávörpuðu ráðstefnuna meðal annarra þau Lim Thuan Kuan, sendiherra Singapúr gagnvart Íslandi, og Sigríður Snævarr, sendiherra Íslands gagnvart Singapúr. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra lagði áherslu á nýsköpun til að mæta vaxandi matvælaþörf í ávarpi sínu. Rúmlega fimm hundruð manns í tveimur heimsálfum horfðu á beina útsendingu frá fundinum enda málefnið brýnt. „Nú þurfa allir að vinna saman til að ná settum markmiðum, hvort sem það er hið opinbera eða einkageirinn,” sagði Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra í ávarpi sínu. „Við þurfum að nota þær diplómatísku leiðir sem eru fyrir hendi og tengingar í viðskiptalífinu. Ef við nýtum okkur ekki kraft einkageirans vegna stjórnmálalegra ástæðna, sem sumir stjórnmálamenn boða, munum við aldrei ná markmiðum okkar,“ sagði Guðlaugur Þór enn fremur. Þótt höf og álfur skilji að er ríkur vilji milli ríkjanna til að vinna saman að framsækinni nýsköpun þegar kemur að matvælaframleiðslu framtíðarinnar. Tækifæri fyrir nýsköpunarfyrirtæki í löndunum tveimur eru fjölmörg. „Nýsköpun í matvælaframleiðslu er lykilatriði og styður við sjálfbærni og efnahagslegar framfarir. Við þurfum að auka viðskipti okkar, samvinnu okkar hæfustu vísindamanna og deila tækniþekkingu okkar,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson. Hægt er að nálgast upptöku frá fundinum á vef Íslandsstofu. Þar er hægt að fá greinargóða mynd af nýsköpun í löndunum tveimur og því hvernig matvælaframleiðslu framtíðarinnar verður háttað. Allar upplýsingar um viðburðinn ásamt dagskrá og upptöku má nálgast hér. Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál. Þróunarsamvinna Singapúr Mest lesið Bóndinn í „miklu andlegu ójafnvægi“ þegar hann vanrækti nautgripi sína Innlent Lögðu hald á tíu tonn af kókaíni nærri Kanaríeyjum Erlent Gerður höfundur að fræðigrein sem hann skrifaði ekki Innlent Boða til blaðamannafundar vegna stöðu barna Innlent Líkti Nönnu við skerpukjöt og uppskar gífurlega reiði Innlent Farið yfir skandalinn í Minnesota: Vopnvæðir fjársvik til að refsa „bláum ríkjum“ Erlent Hafnarfjarðarmálið: Spurning hvort ekki hafi verið litið til frásagnar foreldra Innlent Rafmagnið í skemmunni þótti „slysagildra“ Innlent Ríkið brotlegt í einu máli en sýknað í öðru Innlent Borgin firrti sig allri ábyrgð á skemmunni Innlent
Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.
Þróunarsamvinna Singapúr Mest lesið Bóndinn í „miklu andlegu ójafnvægi“ þegar hann vanrækti nautgripi sína Innlent Lögðu hald á tíu tonn af kókaíni nærri Kanaríeyjum Erlent Gerður höfundur að fræðigrein sem hann skrifaði ekki Innlent Boða til blaðamannafundar vegna stöðu barna Innlent Líkti Nönnu við skerpukjöt og uppskar gífurlega reiði Innlent Farið yfir skandalinn í Minnesota: Vopnvæðir fjársvik til að refsa „bláum ríkjum“ Erlent Hafnarfjarðarmálið: Spurning hvort ekki hafi verið litið til frásagnar foreldra Innlent Rafmagnið í skemmunni þótti „slysagildra“ Innlent Ríkið brotlegt í einu máli en sýknað í öðru Innlent Borgin firrti sig allri ábyrgð á skemmunni Innlent