Albumm

Rólegt popp sem þróast yfir í þyngri og undarlegri tóna

Ritstjórn Albúmm.is skrifar
Bony Man

Tónlistamaðurinn Bony Man gaf út sína fyrsta breiðskífu, Cinnamon Fields, 2. september síðastliðinn og hefur hún hlotið góðar viðtökur.  

Þetta er ellefu laga gripur sem byrjar í rólegu poppi en þróast jafnt og þétt yfir í þyngri og undarlegri tóna eftir því sem á líður. Bony Man hefur gefið frá sér fimm smáskífur síðastliðið ár sem öll er finna á nýju plötunni.

Platan er tekin upp í Aeronaut Studios og Arnar Guðjónsson stjórnaði upptökum auk þess sem hann spilar á trommur, píanó, fiðlu, selló og fleira.

Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í albumm@albumm.is.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.