Halldór Orri spilar kveðjuleik sinn á laugardaginn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. september 2021 10:30 Halldór Orri Björnsson hefur fært sig aftar á völlinn síðustu ár. Vísir/HAG Stjarnan tekur á móti KR í 22. og síðustu umferð Pepsi Max deildar karla í fótbolta á laugardaginn og þar mun einn maður eiga hug og hjörtu stuðningmanna Stjörnunnar.
Halldór Orri Björnsson hefur tekið ákvörðun um að hætta hjá Stjörnunni og spilar kveðjuleik sinn í lokaumferðinni. Halldór Orri en næstleikjahæsti leikmaður Stjörnunnar í efstu deild á eftir Daníel Laxdal og sá næstmarkahæsti á eftir Hilmari Árna Halldórssyni. Hann er fæddur árið 1987 og er því orðinn 34 ára gamall. „Þessi leikur hefur samt sem áður mikla þýðingu fyrir einn af okkar dyggustu þjónum frá upphafi og jafnframt einn markahæsta leikmann okkar í efstu deild. Halldór Orri mun leika kveðjuleik sinn á laugardaginn þegar KR mætir í heimsókn í lokaumferð Pepsi Max deildarinnar,“ segir í frétt á fésbókarsíðu Stjörnumanna. Halldór Orri snéri aftur í Stjörnuna fyrir síðasta tímabil eftir nokkur ár í FH en hann spilaði sinn fyrsta deildarleik með Stjörnunni fyrir sautján árum. Þetta er hans þrettánda meistaraflokkstímabil með Garðabæjarliðinu en fyrstu fjögur tímabilin hans var liðið í 1. deildinni. Stjarnan komst upp árið 2008 og hefur spilað í úrvalsdeildinni síðan. Halldór Orri fór í eitt ár út í atvinnumennsku og missti því af Íslandsmeistaraárinu 2014. „Fjölmennum á völlinn og kveðjum Dóra almennilega, eins og hann á svo sannarlega skilið,“ segir í frétt Stjörnumanna. Halldór Orri Björnsson er með 61 mark og 31 stoðsendingu í 214 leikjum í efstu deild fyrir Stjörnuna og FH.
Pepsi Max-deild karla Stjarnan Mest lesið Fabrizio Romano að hætta Enski boltinn Dagný Brynjars snýr aftur í fótboltann Íslenski boltinn Ronaldo hughreystir Messi: „Stórt faðmlag til þín og þinna nánustu“ Fótbolti 86 kíló af marijúana fundust í liðsrútunni Fótbolti Skoraði þrennu á 92 sekúndum og bíður eftir staðfestingu frá Guinness Fótbolti Gylfi: Fjárfestum í leikmönnum því þjálfarateymið er ódýrt Sport Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Körfubolti Með þrennu í fyrstu tveimur leikjunum sínum með Dortmund Fótbolti Myndir af Haaland á stórri kókaínsendingu Fótbolti Segir lykilatriði fyrir titilvonir Liverpool að ná í Barcola Enski boltinn Fleiri fréttir Uppgjörið: Breiðablik - Grindavík/Njarðvík 1-0 | Katelyn Duong hetja Blika Dagný Brynjars snýr aftur í fótboltann Uppgjörið: Þróttur-Valur 3-2 | Fyrsti sigur Þróttar í 75 daga Uppgjörið: Fram-FH 4-6 | Ótrúleg markasúpa á Lambhagavelli Fékk atvinnutilboð erlendis og hættir með kvennalið Keflavíkur Þórsarar fá annan Víking norður Þróttarar fá Björgeyju Njálu aftur heim Keflvíkingar bæta við sig Króata Staðfestir brottför Gunnars: „Einn besti varnarmaður frá upphafi“ Ásdís Karen til FH Um ótrúlegt met KR: „Langskemmtilegustu leikirnir“ Martröðin í Kasakstan þjappaði Blikum saman Sjáðu öll 64 mörk KR í sumar Sveinn Aron spilar með Víkingi eins og afi sinn „Búið að gerast á frekar fyndinn hátt hjá mér síðustu ár“ Stúkumönnum fannst ósanngjarnt að reka Conteh út af Sjáðu KR bæta markametið gegn Fram Kennie: Við töpuðum leiknum á fyrstu 25 mínútunum „Ætlaði þetta að vera einn af þessum dögum?“ Ekkert gengur hjá Haukum eftir komu Söru Bjarkar Uppgjörið: Fram-KR 2-5 | KR-ingar fóru heim með annað sætið KR-ingar geta ógnað ótrúlegu afreki Skagamanna í kvöld Tryggvi Hrafn klárar tímabilið með Val „Höfum trú á að við getum farið inn í alla leiki til þess að vinna“ „Búnir að vera í basli en þetta er vonandi byrjun á betri spilamennsku“ Hallgrímur segir stöðuna erfiða: „Þetta er þungt núna“ Uppgjörið: Breiðablik - Valur 1-3 | Langþráður sigur Brazell „Vantar bara herslumuninn og sá munur kom í dag“ „Missir ástina á fótbolta við að taka þátt í svona bulli“ Fannst ÍBV brjóta fyrir vítadóminn Sjá meira