Lífið

Kosningapartý á Nesinu sem verður seint toppað

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Sigurður Ingi lengst til vinstri, Bogi Ágústsson lengst til hægri og svo fleiri kunnugleg andlit. Glúmur í banastuði með bindið á enninu.
Sigurður Ingi lengst til vinstri, Bogi Ágústsson lengst til hægri og svo fleiri kunnugleg andlit. Glúmur í banastuði með bindið á enninu. Vísir/Elísabet Inga

Logi Ágústs, Glúmur og Lilja í epísku kosningapartý á Seltjarnarnesinu? Ekki alveg en einhver hefði þó látið blekkjast. Hressir vinir blésu til partýs í tilefni kosninga þar sem allir klæddu sig upp sem þingmenn og voru í banastuði.

Elísabet Inga Sigurðardóttir, fréttakona Stöðvar 2, ræddi við fólkið sem hélt sér ansi hreint vel í karakter. Sigmundur var með hrátt hakk, Lilja ætlaði að halda áfram að einbeita sér að menntamálunum en Logi Einarsson var ekki alveg nógu sáttur.

Lilja, eða eftirherma hennar, var gestgjafi og vildi halda partý til að efla tengslin hjá hópnum. Allir ætluðu í ríkisstjórn þegar beðið var að rétta upp hönd. Sigurvegarar búningakeppninnar voru krýndir.

„Þetta er flottasta partý sem ég hef komið í,“ sagði Elísabet Inga.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.