Ók á yfir 160 kílómetra hraða á flótta frá lögreglu Viktor Örn Ásgeirsson skrifar 30. október 2021 07:27 Margir virðast hafa lagt af stað út í umferðina í annarlegu ástandi í gær. Vísir/Vilhelm Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu virðist hafa staðið í ströngu við umferðareftirlit í gærkvöldi og í nótt. Fjölmargir ökumenn voru stöðvaðir, ýmist undir áhrifum áfengis eða fíkniefna.
Ökumaður bifreiðar í Árbænum sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglu og hófst þá eftirför. Bifreiðinni var ekið yfir 160 kílómetra hraða og ók ökumaðurinn ítrekað á móti umferð. Ökumaðurinn stöðvaði bifreiðina að lokum og tókst að hlaupa frá vettvangi. Lögregla telur sig vita hver hafi staðið að verki. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þá stöðvaði lögregla akstur bifreiðar í miðbæ Reykjavíkur, þar sem ökumaður hafði verið staðinn að því að aka án öryggisbeltis. Í ljós kom að ökumaðurinn reyndist vera án ökuréttinda og var hann þar að auki skilríkjalaus. Ökumaðurinn var færður á lögreglustöð til þess að hægt væri að staðfesta hver einstaklingurinn væri. Tveir voru teknir fyrir of hraðan akstur á Kringlumýrarbraut. Einn mældist á 117 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er áttatíu kílómetra hraði á klukkustund. Ökumaðurinn var grunaður um akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna en var látinn laus að lokinni sýnatöku. Þá mældist annar á 114 kílómetra hraða við hraðamælingu á Kringlumýrarbrautinni. Sá viðurkenndi brotið og var skýrsla rituð í kjölfarið.
Reykjavík Lögreglumál Mest lesið Kostaði umdeilda færslu á síðu flokks sem hann er hættur í Innlent Kortleggja neðanjarðarbyrgi vegna hótana Rússa Erlent Vill eyða vantrausti sem sé olía á eld rasisma Innlent Stuðningur við Trump kostaði sambandið við Elon Erlent „Girtu þig nú í brók og horfstu í augu við sjálfan þig“ Innlent Mega fresta kosningu í allt að viku verði óveður á laugardag Innlent Saksóknarar vilja Pelicot í 20 ára fangelsi Erlent Meirihluti aukinna ríkisútgjalda farið í laun og bætur Innlent Íslensk kona í haldi: Hótelherbergi á Tenerife þakið blóði Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Fleiri fréttir HR-ingar spyrja frambjóðendur spjörunum úr Segir Miðflokksmönnum að „gráta minna og brosa meira“ Segja allt of mikið gert úr hneykslismálum stjórnmálamanna Súðavíkurnefnd skipuð og hefur ár til að skila niðurstöðum Meirihluti aukinna ríkisútgjalda farið í laun og bætur Mega fresta kosningu í allt að viku verði óveður á laugardag Vill eyða vantrausti sem sé olía á eld rasisma Kölluð út vegna fiskibáts sem hafði misst vélarafl Leitaði á lögreglustöð með áverka eftir líkamsárás Virknin stöðug og bundin við nyrsta gíginn Kostaði umdeilda færslu á síðu flokks sem hann er hættur í Flugvélar og fólk skautuðu á Hafravatni Tvær á toppnum Gasmengun helsta hættan í Grindavík „Það má Guð vita“ Bælin tóm og Diegos sárt saknað: „Hann er einn af okkur“ „Girtu þig nú í brók og horfstu í augu við sjálfan þig“ Bjartsýni í Karphúsinu og kattarins Díegó leitað Lofa fullum trúnaði ef Diego verður skilað Leitaði trúnaðarupplýsinga til að staðfesta orðróm en fékk sparkið Ákærður fyrir stunguárásina á Menningarnótt Dómsmál setur áform Heidelberg í uppnám Enn talsverður kraftur í eldgosinu Bitist af mikilli hörku um atkvæði íbúa í Ölfusi Breytinga að vænta á fylgi Flokks fólksins Krapastífla hefur myndast í Ölfusá við Selfoss Hjúkrunarfræðingar samþykktu samning Sást á öryggismyndavélum þegar Diego var numinn á brott Lögreglumenn furðuðu sig á vígahnetti Kjörin í stjórn Evrópska ungmennavettvangsins Sjá meira