„Njósnari“ fannst dáinn við sendiráð Rússlands í Berlín Samúel Karl Ólason skrifar 5. nóvember 2021 18:01 Sendiráð Rússlands í Berlín. Maðurinn er sagður hafa fallið út um glugga á efri hæðum byggingarinnar. EPA/FELIPE TRUEBA Rússneskur erindreki fannst látinn fyrir utan sendiráð Rússlands í síðasta mánuði. Maðurinn er sagður hafa fallið út um glugga í sendiráðinu áður en hann fannst að morgni 19. október.
Engin lögreglurannsókn fór fram og var líkið mannsins ekki krufið vegna pólitískrar stöðu hins látna. Fjölmiðlar ytra segja manninn hafa verið 35 ára gamlan og hann hafi starfað sem annar ritari sendiráðsins. Der Spiegel segir öryggisþjónustur Þýskalands telja manninn hafa verið njósnara FSB, leyniþjónustu Rússlands. Þá segjast rannsakendur Bellingcat hafa staðfest að maðurinn hafi verið sonur hershöfðingjans Alexey Zhalo, sem er einn æðsti yfirmaður FSB. Zhalo stýrir deild FSB sem Þjóðverjar og önnur ríki telja hafa staðið að eitrun Alexeis Navalní í fyrra og annarra í Rússlandi. Deildin er einnig talin hafa staðið að morði manns frá Georgíu sem skotinn var til bana í Berlín árið 2019. Sjá einnig: Útsendarar FSB sagðir hafa eitrað fyrir Navalní Utanríkisráðuneyti Rússlands hefur ekki viljað tjá sig um máið að „siðferðislegum“ ástæðum, samkvæmt frétt TASS fréttaveitunnar, sem er í eigu rússneska ríkisins.
Þýskaland Rússland Mest lesið Eyjólfur færir klukkuna aftur Innlent Vegfarandi á sjúkrahús og Kringlumýrarbraut lokað eftir þriggja bíla árekstur Innlent Bandaríkjamenn heimila Indverjum að kaupa olíu frá Rússlandi Erlent Síminn búinn að glamra í fjóra áratugi Innlent „Margir staðir og margir sakborningar“ Innlent „Brýn nauðsyn“ geti kallað á rof þagnarskyldu heilbrigðisstarfsfólks Innlent Vilja lokka höfuðborgarbúa norður og lofa nóg af bílastæðum Innlent Methiti í hafinu við Ísland vísbending um stærri breytingar Innlent Skurðlæknir í Lundúnum fjarlægði blöðruhálskirtil á Gíbraltar Erlent Gefst upp og flytur eftir sjö ára mótmæli Innlent Fleiri fréttir Telja líklegt að þeir hafi drepið írönsku skólastúlkurnar Skurðlæknir í Lundúnum fjarlægði blöðruhálskirtil á Gíbraltar Grænmetis„borgarar“ í lagi en ekki grænmetis„beikon“ Bandaríkjamenn heimila Indverjum að kaupa olíu frá Rússlandi Bandaríkin og Ísrael boða harðari árásir á næstu dögum Handleggsbrotinn eftir átök við þingmann Noem rekin Leita til Úkraínumanna vegna íranskra sjálfsprengidróna Telja sjávarhæð verulega vanmetna sem gæti ógnað milljónum manna Játar að hafa haldið við aðstoðarkonu sem kveikti í sér Bæta við einu geimskoti og stefna á tunglið 2028 Íhugar að reka Noem eftir deilur við þingmenn Reyna að vernda líf áhafnar annars íransks skips Ráðast á bandarískt olíuflutningaskip en sverja af sér árás á Tyrkland Bondi neydd til að svara spurningum um Epstein-málið Skæðadrífa frá Íran og Ísraelar héldu árásum á Líbanon áfram Taka beri orðum bandarískra stjórnvalda um stöðuna í Íran með fyrirvara Sökktu skipi með tundurskeyti í fyrsta sinn frá seinna stríði Gæti Ísland dregist inn í átökin?: Eldflaug frá Íran skotin niður í lofthelgi Tyrklands Gefur lítið fyrir hótanir Trumps Írönum og Bandaríkjamönnum ber ekki saman um stöðuna á Hormuz-sundi Danskur öfgamaður ákærður fyrir nauðgunarlýsingar Clinton stöðvaði yfirheyrsluna og gekk út Græningjar teknir fram úr Verkamanna- og Íhaldsflokki Vaktin: Átökin breiðast enn út Frakkar fjölga kjarnavopnum Ísrael gerir árásir á Tehran og Beirút og Íranir svara fyrir sig Melania fer með formennsku á fundi öryggisráðsins Fönguðu kolefni með sömu aðferð og átti að nota í Hvalfirði Eltihrellir Marin ekki talinn sakhæfur Sjá meira