Koma bleyjuklæddir heim vegna salernisbilunar Hólmfríður Gísladóttir skrifar 6. nóvember 2021 19:07 McArthur og félaga hefur varla grunað þegar þau voru að leggja í hann að þau myndu snúa aftur í bleyjum. Getty/Aubrey Gemignani Geimfarar sem nú dvelja um borð í Alþjóðlegu geimstöðinni en hyggja á heimferð á morgun neyðast til að vera með bleyju á leiðinni heim, þar sem salernið um borð í SpaceX farinu sem mun flytja þá til jarðar er bilað.
Geimfarinn Megan McArthur segir stöðu mála ekki hina bestu en viðráðanlega. Hún og ferðafélagar hennar þrír munu verja 20 klukkustundum í farinu, frá því að lokað verður á þau í geimstöðinni og þar til þau lenda í sjónum á mánudagsmorgun. „Geimferðir fela í sér margar litlar áskoranir,“ sagði McArthur á blaðamannafundi. „Þetta er ein þeirra sem við þurfum glíma við í okkar ferð. Þannig að við höfum ekki of miklar áhyggjur af þessu.“ Eftir mikil fundarhöld á föstudag var ákveðið að láta verða af heimferð geimfaranna, jafnvel þótt þeir sem eiga að leysa þá af verði ekki komnir um borð í geimstöðina. Ferð þeirra hefur nú þegar verið frestað um viku vegna veðurs og af ótilgreindum heilsufarsástæðum. McArthur og félagar eru sagðir hafa orðið varir við salernisvandamálið þegar þau losuðu klæðningu og fundu hlandpoll þar undir. Þetta mun ekki vera í fyrsta sinn sem hland fer þangað sem það á ekki heima um borð í geimfari frá SpaceX en það gerðist líka í ferð í september. Hlandlekinn gerir það að verkum að geimfararnir munu þurfa að klæðast því sem NASA lýsir sem „rakadrægum undirfatnaði“. Guardian greindi frá.
Geimurinn Alþjóðlega geimstöðin Vísindi Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Fleiri fréttir Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Sjá meira