Menning

Edda og Snæfríður frumsýna Rauðu kápuna í Hádegisleikhúsinu

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Edda Björgvinsdóttir og Snæfríður Ingvarsdóttir leika í sýningunni Rauða kápan.
Edda Björgvinsdóttir og Snæfríður Ingvarsdóttir leika í sýningunni Rauða kápan. Þjóðleikhúsið

Í hádeginu í dag frumsýnir Þjóðleikhúsið Rauðu Kápuna eftir Sólveigu Eir Stewart. Leikarar sýningarinnar eru þær Edda Björgvinsdóttir og Snæfríður Ingvarsdóttir.

„Tvær gjörólíkar konur mæla sér mót á veitingahúsi eftir að hafa tekið kápu hvor annarrar í misgripum nokkrum dögum áður. Þær komast að því að þær eiga kannski meira sameiginlegt en þær hafði grunað,“ segir um söguþráð sýningarinnar.

Rauða kápan er annað verkið sem sýnt er í nýju Hádegisleikhúsi Þjóðleikhússins og eitt fjögurra nýrra íslenskra verka sem verða frumsýnd í Hádegisleikhúsinu í vetur. Þar njóta gestir stuttrar leiksýningar og ljúffengrar súpu í hádeginu. Hver sýning tekur innan við hálftíma í flutningi.

Rauða kápan er hjartnæmt, skondið verk eftir spunkunýtt leikskáld, Sólveigu Eir Stewart.Þjóðleikhúsið

„Leikhúsgestir hafa tekið fagnandi á móti nýju Hádegisleikhúsi Þjóðleikhússins. Sýningin Út að borða með Ester var frumsýnd í september en nú er komið að því að sýna annað nýtt íslenskt verk eftir splunkunýtt leikskáld, Sólveigu Eir Stewart. Rauða Kápan er hjartnæmt, skondið verk sem segir frá tveimur gjörólíkum konum sem mæla sér mót á veitingahúsi eftir að hafa tekið kápu hvor annarrar í misgripum nokkrum dögum áður. Þær komast að því að þær eiga kannski meira sameiginlegt en þær hafði grunað,“ segir í tilkynningu frá Þjóðleikhúsinu. 

Leikarar eru þær Edda Björgvinsdóttir og Snæfríður Ingvarsdóttir en leikstjóri er Hilmar Guðjónsson. Aðrir höfundar sem eiga verk í Hádegisleikhúsinu í vetur eru þau Bjarni Jónsson, Jón Gnarr og Hildur Selma Sigbertsdóttir. 

Allar sýningar Hádegisleikhússins eru stuttar.Þjóðleikhúsið

Þjóðleikhúsið auglýsti árið 2020 eftir handritum og hugmyndum að styttri verkum fyrir hádegisleikhús. Þátttaka íslenskra leikskálda var gríðarlega góð en alls bárust 254 verk frá 194 höfundum. Verkin verða í framhaldinu tekin upp og sýnd í Sunnudagsleikhúsi RÚV.


Tengdar fréttir

Uggandi yfir tak­mörkunum en stefna á notkun hrað­prófa

Bragi Valdimar Skúlason, einn meðlima hljómsveitarinnar Baggalúts, segir nýjustu sóttvarnaaðgerðir stjórnvalda setja sívinsæla jólatónleikaröð sveitarinnar í talsvert uppnám. Jólatónleikar sveitarinnar eru ómissandi hluti aðventunnar hjá fjölda Íslendinga, en engir tónleikar fóru fram í fyrra vegna samkomutakmarkana.

Óbærilegt að vera manneskja á tímum samfélagsmiðla

„Okkur langaði núna fyrst og fremst að gera skemmtilegt leikhús,“segir Tatjana Dís Aldísar Razoumeenko. Leikhópurinn Konserta sýnir nú á Loftinu í Þjóðleikhúsinu fyrsta leikverk sitt, Sýningin okkar.

Gæsahúðarútgáfa af Nangíjala úr Rómeó og Júlíu

Sýningin Rómeó og Júlía, sem hefur verið á fjölunum í Þjóðleikhúsinu í haust, hefur vakið mikla athygli og heillað leikhúsgesti unga sem aldna. Sviðsetningin er sannkölluð sjónræn veisla eins og fjallað hefur verið um hér á Vísi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.