Alls verða fimm tónleikar í tónleikaröðinni Bylgjan órafmögnuð. KK og Krummi hafa nú þegar haldið sína tónleika og Páll Óskar á á sviðið kvöldið í kvöld. Þau sem koma fram næstu fimmtudagskvöld klukkan 20 eru Hreimur og svo Ellen Kristjáns og Eyþór Gunnars ásamt börnum.
Tónleikarnir eru teknir upp á Barion Bryggjan og eru sannkallað gull í eyru og augnakonfekt. Tónleikarnir hefjast klukkan 20 og verður þá hægt að horfa á þá á Stöð 2 Vísi og í spilaranum hér fyrir neðan.
Uppfært: Tónleikunum er lokið en upptöku af þeim má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.