Bræðurnir skoruðu í öruggum sigri Íslands Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 12. nóvember 2021 15:51 Ágúst Eðvald (nr. 22) og Kristian Nökkvi (nr. 10) Hlynssynir skoruðu báðir í sigri Íslands á Liechtenstein í dag. vísir/Bára Ísland vann öruggan sigur á Liechtenstein, 0-3, í undankeppni EM U-21 árs landsliða í dag. Bræðurnir Ágúst Eðvald og Kristian Nökkvi Hlynssynir voru báðir á skotskónum.
Með sigrinum komst Ísland upp að hlið Kýpurs í 3. sæti D-riðils undankeppninnar. Bæði lið eru með sjö stig. Öll mörkin í leiknum í Eschen í dag komu á sextán mínútna kafla í fyrri hálfleik. Ágúst Eðvald kom Íslandi yfir á 15. mínútu eftir sendingu frá Hákoni Arnari Haraldssyni. Tíu mínútum síðar lagði Ágúst Eðvald upp mark fyrir yngri bróður sinn, Kristian Nökkva. Á 31. mínútu skoraði fyrirliðinn Brynjólfur Andersen Willumsson svo þriðja mark íslenska liðsins með frábæru skoti. Íslendingar létu þessi þrjú mörk duga þrátt fyrir að hafa verið í sókn nánast allan leikinn. Alls átti Ísland fjórtán skot í leiknum en Liechtenstein aðeins tvö. Byrjunarlið Íslands má sjá hér fyrir neðan. Kristall Máni Ingason, Sævar Atli Magnússon, Viktor Örlygur Andrason, Bjarki Steinn Bjarkason og Orri Steinn Óskarsson komu inn á í seinni hálfleik. Sá síðastnefndi, sem er aðeins sautján ára, lék sinn fyrsta leik með U-21 árs landsliðinu í dag. Byrjunarlið U21 karla fyrir leikinn gegn Liechtenstein í undankeppni EM 2023.Leikurinn fer fram á Sportpark Eschen-Mauren og hefst kl. 14:00.Bein útsending á vef knattspyrusambands Liechtenstein:https://t.co/0yVRDTeJkkU21 men starting lineup today!#fyririsland pic.twitter.com/V5KUsf2fqA— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) November 12, 2021 Á þriðjudaginn mætir Ísland Grikklandi í síðasta leik sínum á þessu ári. Grikkir eru í 2. sæti riðilsins með átta stig.
Fótbolti Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Enski boltinn Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Enski boltinn „Var ekki langt frá því að tárast“ Handbolti Sjáðu rauða spjaldið sem Gísli fiskaði og fékk svo sjálfur Handbolti Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán Fótbolti Fleiri fréttir Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Gætu tekið þátt í meti en fráfall konungsins hefur mikil áhrif Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán FIFA tekur til varna og sakar UEFA um ófrægingarherferð gegn Infantino Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Hver var í flottustu treyjunni? Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Tufegdzic bræður til Malmö Klopp umbreytir starfinu Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs Daníel Leó til dönsku meistaranna Banni Aubameyang með landsliðinu aflétt en hann hættir samt KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Bayern lenti óvænt undir í fyrstu umferð bikarsins Elías Rafn hélt hreinu og kom Midtjylland á toppinn Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Arna og Fanney áfram í Evrópubikarnum Sjá meira