Rúmenska barnið á núna metið sem Siggi Jóns átti lengi Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 15. nóvember 2021 14:00 Enes Sali þykir gríðarlega lofandi leikmaður. getty/Alex Nicodim Hinn fimmtán ára Enes Sali lék sinn fyrsta landsleik fyrir Rúmeníu þegar liðið vann Liechtenstein, 0-2, í J-riðli undankeppni HM í gær. Hann er núna yngsti landsliðsmaðurinn í Evrópu til að spila í undankeppni stórmóts.
Sali kom inn á þegar átta mínútur voru eftir af leiknum. Hann fæddist 23. febrúar 2006 og var því fimmtán ára og 264 daga gamall í sínum fyrsta landsleik. Sali sló þar með met Martins Ødegaard sem var fimmtán ára og þrjú hundruð daga gamall þegar hann lék sinn fyrsta keppnisleik með norska landsliðinu gegn Búlgaríu haustið 2014. Ødegaard bætti þar met Sigurðar Jónssonar yfir yngsta landsliðsmann Evrópu í undankeppni stórmóts. Sigurður var 16 ára og 251 dags þegar hann lék gegn Möltu árið 1983. Hann átti því metið í 21 ár. Eins og fjallað var um á Vísi í síðustu viku vonast Rúmenar til að tryggja sér Sali ef svo má segja. Hann á einnig kost á að spila fyrir landslið Kanada og Tyrklands. Ef hann ætlar sér að spila fyrir annað landslið en Rúmeníu þarf hann að bíða í þrjú ár eftir næsta landsleik sínum. Ef Sali spilar svo fjóra mótsleiki fyrir Rúmeníu má hann, samkvæmt reglum FIFA, ekki spila fyrir annað landslið. Sali spilar fyrir Farul Constanta. Eigandi og þjálfari liðsins er Gheorghe Hagi, besti fótboltamaður sem Rúmenía hefur átt. Sali varð yngsti leikmaðurinn til að skora í rúmensku úrvalsdeildinni í september síðastliðnum. Hann gerði þá eitt mark í 5-0 sigri Farul á Academica Clinceni. Hann fagnaði markinu með því að stökkva í fangið á Hagi.
HM 2022 í Katar Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Enski boltinn „Var ekki langt frá því að tárast“ Handbolti Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán Fótbolti Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Enski boltinn Dagskráin í dag: Liverpool ætlar að landa fyrsta sigrinum Sport Fleiri fréttir Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Gætu tekið þátt í meti en fráfall konungsins hefur mikil áhrif Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán FIFA tekur til varna og sakar UEFA um ófrægingarherferð gegn Infantino Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Hver var í flottustu treyjunni? Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Tufegdzic bræður til Malmö Klopp umbreytir starfinu Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs Daníel Leó til dönsku meistaranna Banni Aubameyang með landsliðinu aflétt en hann hættir samt KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Bayern lenti óvænt undir í fyrstu umferð bikarsins Elías Rafn hélt hreinu og kom Midtjylland á toppinn Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Arna og Fanney áfram í Evrópubikarnum Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir: ,,Hleyptum óþarfa stressi í leikinn” Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Sjá meira