Lífið

Hélt að hann gæti aldrei unnið í útvarpi ef hann kæmi út úr skápnum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Siggu Gunnars er í dag einn vinsælasti útvarpsmaður landsins. 
Siggu Gunnars er í dag einn vinsælasti útvarpsmaður landsins. 

Í þættinum Framkoma á Stöð 2 í gærkvöldi fékk Fannar Sveinsson að fylgjast með þremur Íslendingum áður en þeir stigu á svið.

Um var að ræða þau Sigurð Gunnarsson útvarpsmann, Álfheiði Erlu Guðmundsdóttir óperusöngkonu í Basel og Örn Árnason leikara.

Í þættinum fór Siggi Gunnars yfir þann tíma þegar hann kom út úr skápnum 25 ára.

„Talandi um það að ég sé svo oft fastur í hausnum á mér og býst alltaf við verstu mögulegu útkomunni. Ég bjóst ekki við því að ég gæti unnið í því sem ég vildi vinna í ef ég kæmi út úr skápnum,“ segir Sigurður sem vinnur í dag sem útvarpsmaður á K100 og hefur alla tíð ætlað sér að starfa í útvarpi.

„Ég var svo viss um að allt myndi snúast gegn mér ef ég kæmi út úr skápnum. Innri fordómarnir eru yfirleitt verstu óvinirnir. Þú ert með svo mikla innbyggða fordóma gagnvart sjálfum þér. Ég var bara búinn að búast við því að fjölskyldan myndi snúa við mér bakinu, vinirnir myndu snúa við mér bakinu og heimurinn myndi bara hrynja. Ég er að fatta að ég sé hommi 11, 12 ára og hverjum einasta degi í tíu ár ert þú að hugsa, ég er slæmur, ég er hræðilegur, ég er ógeð,“ segir Siggi og heldur áfram.

„Ástæðan fyrir því að ég er svona glöð manneskja í dag er sennilega að ég lifði þetta bara bókstaflega af. Ég er svo þakklátur að hafa komið út úr skápnum og fengið þetta verkefni í lífinu. Þetta er það besta sem gat komið fyrir mig, þú ferð í svo mikla sjálfsskoðun og þetta er mikið uppgjöf við sjálfan þig.“

Hér að neðan má sjá brot úr síðasta þætti af Framkomu.

Klippa: Hélt að hann gæti aldrei unnið í útvarpi ef hann kæmi út úr skápnum





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.