Lífið

Stefna á að safna milljón fyrir Barna­spítalann með bók­sölu um jólin

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Margrét Hörn Jóhannsdóttir og Dagur Lárusson.
Margrét Hörn Jóhannsdóttir og Dagur Lárusson. stöð2

Næst segjum við ykkur frá ofurhetjum sem stefna á að safna einni milljón fyrir Barnaspítala hringsins með bóksölu um jólin.

Góðhjörtuðu ofurhetjurnar Atlas og Íra afhendu Barnaspítala hringsins í dag bækur og boli í tilefni af útgáfu bókarinnar Landverðirnir: Íra. Um er að ræða myndasögubók um íslenskar ofurhetjur sem láta gott af sér leiða en fyrsta bók ofurhetjanna kom út í fyrra.

„Við gáfum út þessa bók í fyrra og seldum um 400 til 500 eintök og ákváðum að gefa hagnað rithöfundanna til Barnaspítala hringsins. Þannig við komum hingað í febrúar og gáfum hálfa milljón til spítalans,“ sagði Dagur Lárusson, rithöfundur bókarinnar.

„Ég leik karakterinn Íru og býr yfir kröftum íslenska íssins,“ sagði Margrét Hörn Jóhannsdóttir, leikkona.

Til stóð að ofurhetjurnar yrðu reglulegir gestir á spítalanum en vegna kórónuveirunnar láta þeir nægja að heilsa börnunum í gegnum glugga spítalans.

„Hverjar eru alvöru ofurhetjurnar? Það eru krakkarnir hérna sem eru að kljást við óeðlilega erfiða hluti,“ sagði Dagur.

Hafið þið heyrt í börnunum, hvernig líst þeim á bókina?

„Við höfum heyrt frá einstaka börnum já og erum virkir á Tiktok. Þar er ég mikið að tala um bókina og ofurhetjulega hluti. Þar er fólk að missa sig og komið með landvarðaræði þannig að það er gaman að sjá það.“

Ofurhetjurnar stefna á að selja fleiri eintök í ár.

„Markmiðið er að styrkja enn meira. Við viljum selja fleiri eintök af þessari bók þannig að við getum gefið eina milljón til Barnaspítalans. Það er markmiðið núna.“

„Ef þið viljið styrkja gott málefni og styrkja þessar ofurhetjur þá endilega kíkið á landverðirnir.is.“ sagði Dagur.

Bókin fæst í helstu verslunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.