Pfizer segir örvunarskammtinn vernda vel gegn ómíkronafbrigðinu Atli Ísleifsson skrifar 8. desember 2021 13:38 Pfizer vinnur áfram að þróun bóluefnis gegn ómíkronafbrigðinu og er reiknað með að það verði tilbúið í mars næstkomandi. EPA Bandaríski lyfjarisinn Pfizer segir að svokallaður örvunarskammtur gegn kórónuveirunni, það er þriðja sprautan, veiti góða vernd gegn ómíkronafbrigði kórónuveirunnar, mun betri en tveir skammtar gera.
Þetta er er meðal niðurstaðna nýrrar rannsóknar fyrirtækisins á upprunalegu bóluefni Pfizer og sagt er frá í tilkynningu á vef Pfizer. Pfizer vill meina að örvunarskammturinn virki álíka vel gegn ómíkronafbrigðinu og tveir skammtar gerðu gegn upprunalegu kórónuveirunni sem olli COVID-19. Haft er eftir Albert Bourla, forstjóra Pfizer, að tvær sprautur geti áfram verndað ágætlega gegn alvarlegum veikindum, en að ljóst sé á þessum nýju rannsóknum að verndin aukist enn frekar með örvunarskammti, það er þriðju sprautunni. „Að tryggja að eins margir og hægt er fái tvo skammta og svo örvunarskammt, er besta leiðin til að stemma stigu við útbreiðslu COVID-19,“ segir Bourla. Í tilkynningu Pfizer kemur jafnframt fram að fyrirtækið vinni áfram að þróun bóluefnis gegn ómíkronafbrigðinu og er reiknað með að það verði tilbúið í mars næstkomandi.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Bólusetningar Heilbrigðismál Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Fleiri fréttir Vill nýjan Úkraínuforseta Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Níu létust eftir skotárás Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Sjá meira