Lífið

Síminn ekki stoppað í dag hjá nýju stórstjörnunni

Snorri Másson skrifar
Sigurvegari sænska Idolsins í ár, Birkir Blær Óðinsson.
Sigurvegari sænska Idolsins í ár, Birkir Blær Óðinsson. Idol

Birkir Blær Óðinsson, sem vann sænska Idol-ið í gærkvöld, á eftir að rýna alveg í samninginn sinn, en honum skilst að nú fram undan sé að taka upp tónlist og halda tónleika. Að taka þátt í keppninni hefur breytt lífi hans, segir hann.

Lokakeppnin var í gær og Birkir flutti All I Ask eft­ir Adele, annað It's A Man's World með James Brown og loks frumsamda lagið Weightless. Svo beið hann spenntur - og næstum öll Akureyri líka - eftir lokaniðurstöðunni.

„Þetta var alveg sturlað bara. Já, eiginlega bara alveg sturlað. Ég veit ekki alveg hvernig ég á að lýsa því. Ég er bara rosalega glaður og þakklátur fyrir að hafa fengið að gera þetta allt saman. Og ég er bara spenntur fyrir framhaldinu,“ segir Birkir, sem átti stund milli stríða til að ræða við blaðamann.

Eftir sigurinn hefur athyglin skiljanlega verið töluverð en Birkir hefur lært að íslenskir blaðamenn eru töluvert ágengari en þeir sænsku. Það hlýtur að vera heilbrigðismerki.

„Síminn minn er búinn að titra svolítið mikið og ég er voða lítið búinn að geta svarað,“ segir hann.

Næst á dagskrá er plata hjá Universal Music í Svíþjóð með sönglögum á ensku.

„Núna vil ég bara semja, taka upp, pródúsa, lög og gefa þau út. Og fá svo að syngja þau fyrir fólk. Það er svona það sem mig langar mest að gera núna,“ segir Birkir.

Og heldurðu að þetta hafi breytt lífi þínu? „Já, ég held það, en það er auðvitað of snemmt að segja til um það. En að taka þátt í þessu hefur haft mikil áhrif á mig.“

Birkir er þakklátur fyrir stuðning fjölskyldu sinnar, Akureyringa og Íslendinga allra í gegnum mánuðina þrjá sem eru að baki. Hann hefur alltaf viljað vinna við tónlist og ljóst að nú fær hann tækifæri til þess.

„Bara takk kærlega fyrir allan stuðninginn og allt það og bara já, ég hlakka til að koma í heimsókn næst.“ Óljóst er hvenær af þeirri heimsókn verður, en Birkir kemst naumast heim um jólin, eins og móðir hans hafði vonast til.


Tengdar fréttir

„Kannski stærra en maður áttaði sig á“

Akureyringurinn Birkir Blær Óðinsson er á leið á tónleikaferðalag um Svíþjóð eftir að hann bar sigur úr býtum í sænska Idol-inu í gærkvöldi. Móðir hans segir óhefðbundin jól fram undan og sigurinn stimplar Akureyri inn sem enn frekari tónlistarbæ, segir bæjarstjórinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.