Óbólusett börn geta veikst mikið af nýjum veiruafbrigðum Sunna Valgerðardóttir skrifar 16. desember 2021 20:01 Prófessor í barnalækningum og smitsjúkdómum segir það samfélagslega ábyrgð fullorðinna að láta bólusetja börnin sín, sem geti veikst alvarlega af nýju afbrigðum veirunnar. Ljósið í myrkrinu, að börnin mundu öll sleppa vel, er slokknað. Faraldurinn er á hraðri uppleið enn á ný og það eru óbólusett börn sem halda honum uppi, segir sóttvarnalæknir.
Af þeim tæplega 1.500 sem eru í einangrun, er um þriðjungur börn yngri en 12 ára. 171 greindust smituð innanlands í gær, helmingurinn óbólusettur og mikið til börn. Til stendur að hefja bólusetningar barna, 5 til 11 ára, fljótlega eftir áramót með efni frá Pfizer. Margir foreldrar eru efins um nauðsyn þess að bólusetja svo ung börn, vegna mögulegrar hættu á aukaverkunum og óvissu um framhaldið. Af hverju ættum við að láta bólusetja börnin okkar? „Þetta er lykilspurningin í dag. Ég held að við ættum að láta bólusetja börnin okkar fyrst og fremst barnanna vegna. Þegar faraldurinn fór af stað þá veiktust börn minna en fullorðnir og urðu ekki eins hastarlega veik. Þá var ljós í myrkrinu í þessum leiðindafaraldri. Þetta hefur því miður breyst. Með Delta afbrigðinu þá sýkjast börn meira en áður, fimm sinnum meira en áður, og það eru mjög sterkar vísbendingar um að það verði ennþá meira með ómíkron afbrigðinu” segir Ásgeir Haraldsson, prófessor í barnalækningum og smitsjúkdómum. Hann segir það samfélagslega ábyrgð fullorðinna að láta bólusetja börnin sín. Alvarleg veikindi og dauðsföll meðal barna Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að það séu börnin sem beri faraldurinn uppi, sem er enn á ný á hraðri uppleið. Delta afbrigðið er enn ráðandi, svo við eigum ómíkrónbylgjuna eftir. „Það er hluti barna sem getur veikst alvarlega af Covid-19 á þessum aldri, fimm til ellefu ára. Það er ekki þannig eins og menn hafa verið að halda fram að börn á þessum aldri fái alltaf bara covid mjög vægt,” segir Þórólfur. „Það eru langflest börn sem fá sýkinguna vægt, en það eru upplýsingar um að það eru börn að leggjast inn á sjúkrahús með alvarleg einkenni og það eru dauðsföll tilkynnt af völdum COVID-19, bæði í Evrópu og í Ameríku.” Nánast allir láta bólusetja börnin sín almennt Börn á Íslandi eru bólusett gegn fjölda sjúkdóma: Barnaveiki, hettusótt, kikhósta, mislingum, mænusótt og stífkrampa svo dæmi séu tekin. Það er sárasjaldan ástæða til að bólusetja ekki barn. Ásgeir undirstrikar að langflestir láti bólusetja börnin sín gegn þessum helstu sjúkdómum. „Það eru nánast allir sem þiggja þessar hefðbundnu barnabólusetningar fyrir börnin sín. Það eru frávik, en þau eru mjög fá. Þannig að við stöndum okkur mjög vel, enda eru þessir sjúkdómar horfnir,” segir hann. Mundi frekar vilja ný bóluefni en gömul COVID-bóluefnin virka betur hjá börnum og segja vísindamennirnir báðir að það sé mikill ávinningur í því að koma í veg fyrir truflun á skóla og félagslífi, einangrun og skaða á andlegri heilsu barnanna. Og þó að efnin séu ný á markaðnum, liggur áratugavinna að baki þeim. „Ég segi fyrir sjálfan mig, ef ég þarf á læknisaðstoð að halda, ef ég þarf að fá lyf eða bólusetningu eða eitthvað slíkt, þá vil ég frekar fá það nýja heldur en það gamla. Þetta er nýtt, betra og lengra þróað, þetta veldur minni aukaverkunum en gömlu bóluefnin, sem mörg hver ollu frekari aukaverkunum, þannig að þetta er á allan hátt betra,” segir Ásgeir.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Bólusetningar Börn og uppeldi Tengdar fréttir „Fyllsta ástæða til að hafa miklar áhyggjur” Sóttvarnalæknir segir faraldurinn enn á ný á greinilegri uppleið eftir smittölur gærdagsins. Delta afbrigðið er enn ráðandi hér, en spálíkan hinna Norðurlandanna gera ráð fyrir mjög erfiðum næstu vikum vegna útbreiðslu ómíkron. Óbólusettir, börn og fullorðnir, eru þau sem smitast helst hérlendis. 16. desember 2021 12:07 Mælt með að börn sem hafa fengið Covid-19 fái líka bólusetningu Sóttvarnalæknir hefur ákveðið að öllum fimm til ellefu ára börnum hér á landi verði boðin bólusetning gegn Covid 19. Sjúkdómurinn geti verið alvarlegur hjá börnum á þessum aldri og bólusetning minnki líkur á langtímaáhrifum. Bólusett verður í grunnskólum landsins. 13. desember 2021 20:00 171 greindist með kórónuveiruna í gær 171 greindist með kórónuveiruna innanlands í gær. Ekki hafa svo margir greinst innanlands með veiruna frá 22. nóvember. Þau tímamót urðu í gær að 20 þúsund manns hafa nú greinst með kórónuveiruna hér á landi frá upphafi faraldursins. 16. desember 2021 10:40 Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Fleiri fréttir „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum Sjá meira
„Fyllsta ástæða til að hafa miklar áhyggjur” Sóttvarnalæknir segir faraldurinn enn á ný á greinilegri uppleið eftir smittölur gærdagsins. Delta afbrigðið er enn ráðandi hér, en spálíkan hinna Norðurlandanna gera ráð fyrir mjög erfiðum næstu vikum vegna útbreiðslu ómíkron. Óbólusettir, börn og fullorðnir, eru þau sem smitast helst hérlendis. 16. desember 2021 12:07
Mælt með að börn sem hafa fengið Covid-19 fái líka bólusetningu Sóttvarnalæknir hefur ákveðið að öllum fimm til ellefu ára börnum hér á landi verði boðin bólusetning gegn Covid 19. Sjúkdómurinn geti verið alvarlegur hjá börnum á þessum aldri og bólusetning minnki líkur á langtímaáhrifum. Bólusett verður í grunnskólum landsins. 13. desember 2021 20:00
171 greindist með kórónuveiruna í gær 171 greindist með kórónuveiruna innanlands í gær. Ekki hafa svo margir greinst innanlands með veiruna frá 22. nóvember. Þau tímamót urðu í gær að 20 þúsund manns hafa nú greinst með kórónuveiruna hér á landi frá upphafi faraldursins. 16. desember 2021 10:40